Bjarni Benediktssonleiðarkerfi mynd

06.05.2010

Styrkir úr rannsóknarsjóði Bjarna Benediktssonar afhentir í þriðja sinn

 

Kristín Benediktsdóttir, Sigríður Matthíastdóttir og dóttir Þórs Whitehead tóku á móti styrkjum

Miðvikudaginn 5. maí 2010 kl. 16.00 fór fram þriðja úthlutun á rannsóknarstyrkjum Bjarna  Benediktssonar, það er úr rannsóknarstyrktarsjóði, sem var stofnaður  30. apríl, 2008, á  100 ára afmæli Bjarna til að styrkja rannsóknir á sviði lögfræði og sagnfræði.

 

Björg Thorarensen, prófessor, var formaður úthlutunarnefndar á sviði lögfræði og í ár hlaut   Kristín Benediktsdóttir, doktorsnemi við lagadeild Háskóla Íslands, 1 milljón kr. til rannsóknar á réttarstöðu aldraðra.

 

Anna Agnarsdóttir, prófessor, er formaður úthlutunarnefndar á sviði sagnfræði og í ár hlutu styrki: dr. Þór Whitehead, prófessor, hlaut 500 þús. króna styrk til rannsókna á Íslandi í síðari heimsstyrjöldinni eftir hernám Breta og Sigríður Matthíasdóttir, hugvísindastofnun Háskóla Íslands hlaut 500 þús. kr. til að rannsaka hugmyndir og viðhorf í stjórnarstefnu viðreisnarstjórnarinnar á sviði velferðar- og menntamála.

Helgi Áss Grétarsson, sérfræðingur við lagastofnun Háskóla Íslands, sem hlaut rannsóknarstyrk árið 2009, flutti erindi um rannsóknir á kvótakerfinu, doktorsverkefni sitt.

 

Gunnar Þór Bjarnason, sagnfræðingur, sem hlaut rannsóknarstyrk árið 2009 flutti erindi um heimastjórn, fullveldi og umheiminn.

 

Sjóðurinn er í vörslu Rannís og starfsmenn þar sjá um umsýslu hans gagnvart umsækjendum og við úthlutun styrkja.

 

Share

Til baka...