Bjarni Benediktssonleiðarkerfi mynd

01.01.1900

Lokið við að birta öll skjöl um uppvaxtar- og námsár Bjarna

Nú er lokið við að skanna og birta öll skjöl í þeim hluta skjalasafns Bjarna Benediktssonar sem fjalla um uppvaxtar og námsár hans. Hægt er að skoða skönnuðu skjölin með því að fara í þann hluta vefsíðunnar sem kallast skjalaskrá og síðan í flokk sem kallast uppvaxtar- og námsár. Hér er hlekkur á síðuna. Þegar komið er inn á hana er smellt á þeim skjölum sem óskað er eftir að skoða og opnast þá pdf skjal með viðkomandi skjali eða skjölum.

 

Til þess að geta skoðað skjalaskrárnar þarf að hafa forritið Adobe Reader en hægt að ná í það hér.

 

Adobe Reader

 

Nú er unnið að því að skanna og færa inn á vef skjöl varðandi stjórnmálaferil Bjarna og er það stærsti hluti safns hans. Skjölin eru gerð aðgengileg á vefnum jafnóðum og búið er að skanna þau og vinna.

 

Stefnt er að því að gera allt skjalasafn Bjarna Benediktssonar aðgengilegt á þennan hátt, fyrir utan nokkur skjöl sem er lokaður aðgangur að. Líklega er um að ræða fyrsta safn stjórnmálamanns á Íslandi sem er gert aðgengilegt á þennan hátt.

 

Starfsmenn Borgarskjalasafns og gefendur safnsins vonast til þess að lesendur megi haft gagn og gaman af síðunni.

 

Athugasemdir við efni eða framsetningu sendist til:

 

svanhildur.bogadottir@reykjavik.is

 

Bjarni í Berlín árið 1931

 

Share

Til baka...