Fréttir


26.08.2010 Ný handbók um skjalavörslu sveitarfélaga
Borgarskjalasafn varðveitir skjöl frá öllum borgarstofnunum og fyrirtækjum og leiðbeinir þeim um skjalavörslu. Þjóðskjalasafn Íslands hefur gefið út Handbók um skjalavörslu sveitarfélaga sem ætluð er skjalamyndurum sveitarfélaga, þ.e. sveitarstjórnarskrifstofum, stofnunum sveitarfélaga og fyrirtækjum í þeirra eigu, og er öllum helstu þáttum í skjalavörslu þessara aðila gerð skil.
25.08.2010 Menningarnótt á Borgarskjalasafni 21. ágúst 2010
Nokkrar konur í húsmæðraorlofi taka sporið. Hvaða ár ætli þetta hafi verið ? Borgarskjalasafn tók nú þátt í menningarnótt í ellefta sinn. Boðið var upp á sýningu um tísku, eldri ljósmyndum var varpað á tjald og barnahornið var vinsælt en þar var bæði hægt að lita og gera dúkkulísur. Helmingur hljómsveitarinnar Varsjárbandalagsins lék angurværi balkan tónlist og fjöruga Klezmer tónlist og Örlygur Eyþórsson lék á harmoníkku. Hátt á sjötta hundrað gesta sóttu safnið heim á menningarnótt.
19.08.2010 Fjölbreytt dagskrá á menningarnótt á Borgarskjalsafni
Borgarskjalasafn verður með opið hús í afgreiðslu safnsins frá kl. 13 til 21. Þema menningarnætur á safninu er TÍZKA og mun safnið verða með sýningu tengda fötum og tísku, varpa upp á skjá ljósmyndum af konum og börnum í fjölbreyttum fatnaði á fyrri hluta 20. aldar. Jafnframt verður sérstakt barnahorn þar sem börnin geta útbúið dúkkulísur og tekið með sér heim. Þá mun Varsjárbandalagið spila kl. 17 og kl. 19.30 kemur Örlygur Eyþórsson til skjalanna og mun spila fjöruga harmóníkkutónlist og er fólki velkomið að stíga dans við tónlistina.

Skoða allar fréttir

 

Áhugaverð skjöl



Ég er ánægður maður. Konan mín kann að matbúa og baka og þvottinn sinn annast hún sjálf. Félagar mínir dáðst að því hvað föt mín eru fallega tilhöfð og hrein.

Skoða öll áhugaverð skjöl



Grófarhúsið

Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Tryggvagötu 15,
101 Reykjavík
Sími: 411 6060

Afgreiðslutími:
Lesstofa er opin mánudaga
til föstudaga kl. 10-16.

Nánar um safnið



Ólafur Thors


Euarchives


Vefur Bjarna Benediktssonar


Félag héraðsskjalavarða


Grein um hernámið í tilefni þess að 70 áru liðin síðan breskur her steig hér á land.