Þjónusta við almenning
Þjónusta við almenning felst m.a. í að svara fyrirspurnum úr skjölum og aðstoða gesti safnsins. Enn fremur tekur safnið á móti einkaskjalasöfnum frá einstaklingum, félögum og fyrirtækjum í Reykjavík. Þessi skjöl gefa okkur aðra mynd af sögu og mannlífi í Reykjavík heldur en opinberu skjölin.
Þjónusta við borgarstofnanir
Í Borgarskjalasafni er aðalgeymslustaður fyrir skjöl borgarstofnana. Borgarskjalasafn er einnig eftirlitsaðili með skjalavörslu afhendingarskyldra aðila og leiðbeinir þeim um skjalavörslu. Safnið stendur fyrir námskeiðum, útgáfu leiðbeiningarrita og fræðslu um skjalavörslu fyrir stofnanir borgarinnar. Ennfremur ákveður Borgarskjalasafn um ónýtingu skjala sem ekki er talin ástæða til að varðveita til frambúðar. Óheimilt er að eyða skjölum án skriflegs samþykkis Borgarskjalasafns nema fyrir liggi skjalavistunaráætlun sem samþykkt hefur verið af safninu.