Fréttasafn


12.02.2009 Fjölbreytt dagskrá á Safnanótt
Borgarskjalasafn tekur þátt í Safnanótt föstudagskvöldið 13. febrúar 2009. Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð. Í boði verður meðal annars hinn hressilegi sönghópur Blikandi stjörnur, Pétur Ben mun flytja nokkur lög, fyrirlestur verður um upphaf knattspyrnu í Reykjavík og fólki gefst kostur á að læra að stoppa uppáhalds sokka sína.
15.01.2009 Birting skjala um sambandsslitin við Danmörku og stjórnarskrármálið
Myndasýning Á vef Borgarskjalasafns um Bjarna Benediktsson hafa bæst við skjöl úr safni Bjarna er varða aðdraganda sambandsslitanna við Dani, þar á meðal tillögur um breytingar á stjórnskipunarlögum í kjölfar lýðveldisstofnunar. Ennfremur er um að ræða skjöl sem lúta að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins sem fram fór á tímabilinu 1947-1953.
29.12.2008 Sendu gamalt sígilt nýárskort í tölvupósti
Borgarskjalasafn býður fólki að senda nýárskveðjur til vina og vandamanna gegnum vefinn endurgjaldslaust. Um er að ræða gömul og skemmtileg eldri kort sem varðveitt eru í safninu.
19.12.2008 Sendu vinum um allan heim gömul íslensk jólakort í tölvupósti
Hinn vinsæli jólakortavefur Borgarskjalasafns Reykjavíkur hefur nú opnað að nýju. Á honum er hægt að senda í gegnum vefinn gamaldags jólakort endurgjaldslaust og er hægt að velja um jólakveðjur á 25 tungumálum og yfir 30 gerðir af jólakortum.
17.11.2008 Neyðarráðstafanir í Reykjavík 1916-1919
Borgarskjalasafn Reykjavíkur stendur nú fyrir sýningu á skjölum sem endurspegla þrengingar sem Reykvíkingar upplifðu á tímum fyrri heimstyrjaldarinnar Á þeim tíma var mikil fátækt og gífurlegur skortur á matvælum og eldsneyti og varð að taka upp skömmtun á nauðsynjavörum.
04.11.2008 Skjaladagsvefur opnaður
Þjóðskjalasafn Íslands, Borgarskjalasafn Reykjavíkur og héraðsskjalasöfn um land allt opnuðu í dag sérstakan vef til að kynna starfsemi sína og safnkost. Slóðin er www.skjaladagur.is. Borgarskjalasafn fjallar þar um hasar í höfuðborginni, hættuna af hermönnum í borginni, stórkostlegt vöruúrval í verslunum og samkynhneigða.