Fréttasafn


25.09.2006 Kjötbúðin Borg afhendir Borgarskjalasafni, skjalasafn sitt.
Nýlega afhenti Kjötbúðin Borg, Borgarskjalasafni gögn tengd rekstri hennar. Unnið er að skráningu safnsins og verður það aðgengilegt fræðimönnum og almenningi á næstu mánuðum.
21.09.2006 Erlendir skjalaverðir heimsóttu Borgarskjalasafn
Tveir þátttakendur á ráðstefnu skjalavarða háskóla og rannsóknastofnana sem haldin var hér á landi 13. til 20. september, óskuðu sérstaklega eftir að fá að kynnast starfi Borgarskjalasafns.
12.09.2006 Skjalasafn Ellingsen afhent Borgarskjalasafni
Nýlega fékk Borgarskjalasafn Reykjavíkur afhent skjalasafn verslunarinnar Ellingsen. Um er að ræða mjög heillegt skjalasafn allt frá stofnun fyrirtækisins árið 1916.
01.09.2006 Laugarnesskóli 70 ára - síðasta sýningarhelgi
Nú fer senn að ljúka afmælissýningu Borgarskjalasafns Reykjavíkur í tilefni af 70 ára afmæli Laugarnesskóla. Sýningin er á Reykjavíkurtorgi Grófarhúss, Tryggvagötu 15, 1. hæð. Hún er opin laugardag og sunnudag frá kl. 11-17. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
23.08.2006 Skipulagstillögur sem ekki urðu að veruleika
Nú stendur yfir sýning á Borgarskjalasafni Reykjavíkur tengd skipulagstillögum sem aldrei var hrint í framkvæmd. Hún er í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, 3. hæð og er opin alla virka daga milli klukkan 10-16.
21.08.2006 Getraun Borgarskjalasafns á menningarnótt
Borgarskjalasafn Reykjavíkur stóð fyrir getraun á menningarnótt. Hér má sjá rétt svör og nöfn vinningshafa.