Fréttasafn


Héraðsskjalaverðir með námskeið um neyðaráætlanir, forvarnir og viðbrögð gegn vá

09.06.2011

Á alþjóðlegum degi skjalasafna fimmtudaginn 9. júní 2011 stóð Félag héraðsskjalavarða á Íslandi fyrir hálfs dags námskeiði um gerð neyðaráætlana, forvarnir og viðbrögð við vá á skjalasöfnum.

Skjalasöfn geta orðið fyrir ýmsum skakkaföllum þar sem rétt viðbrögð skipta öllu máli. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir þeim hættum sem geta steðjað að þeim, koma í veg fyrir þær ef hægt er og undirbúa viðbrögð, þannig að tjón verði lágmarkað.

Námskeiðið sóttu 14 starfsmenn héraðsskjalasafna í Reykjavík og nágrenni en fleiri söfn voru tengd gegnum Skype og fundarsíma símans. Fyrirlesarar voru Hrafn Sveinbjarnarson, héraðsskjalavörður í Kópavogi, Svanhildur Bogadóttir, borgarskjalavörður í Reykjavík og Eyþór Víðisson, öryggisfræðingur hjá VSI verkfræðistofu.

Að afloknu þriggja tíma námskeiði var haldið út á hafnarsvæðið og boðið upp á fræðslu um slökkvitæki og æfingu í að slökkva elda undir leiðsögn Jóns Péturssons, slökkviliðsmanns hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Þennan dag á síðasta ári var Félag héraðsskjalavarða með námskeið um skjalamál grunnskóla og leikskóla.

Félag héraðsskjalavarða á Íslandi var stofnað á vormánuðum árið 2009 og hefur staðið fyrir margvíslegri fræðslu og samstarfi milli héraðsskjalasafna um land allt.

 

-------

Ýtarefni:

Þjóðminjasafn Íslands vinnur að útgáfu fyrstu handbókar á íslensku um varðveislu safnkosts, í samstarfi við Þjóðskjalasafn Íslands og Landbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. . Um er að ræða tvö bindi með fræðsluefni sem tekur til margra þátta varðandi langtímavarðveislu efnislega hluta menningararfsins.

Handbókin er ætluð öllum sem starfa við varðveislu menningararfsins, þar á meðal skjalavörðum.

Við undirbúning íslensku handbókarinnar var vönduð og ítarleg bandarísk handbók höfð til hliðsjónar, National Park Service Museum Handbook.Kaflar úr þessari handbók voru nýttir sem fyrirmynd að íslensku handbókinni, en forverðir og  sérfræðingar á ýmsum sviðum hafa þýtt og staðfært textann með íslenskar aðstæður í huga.

Handbókin skiptist í tvö bindi:

Fyrra bindið, sem hér er að finna, fjallar um grunnatriði um umhverfi í söfnum, meðhöndlun og pökkun. Einnig er fjallað um skilyrði í geymslum, öryggi safnkosts og neyðaráætlun.

Seinna bindið mun fjalla um varðveislu gripa eftir tegundum og efni.

Drög að fyrra bindi, maí 2011 (smellið á hlekk til að opna skjal)


------

 

Á vefsíðu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins eru leiðbeiningar um eigið eldvarnareftirlit fyrirtækja. Þar eru meðal annars eftirfarandi skjöl:

 

-------

 

Hér eru leiðbeiningar Þjóðskjalasafns Bandaríkjanna um viðbrögð við tjóni á skjalasöfnum og fleira efni og hér er fjölbreytt leiðbeiningarefni frá Þjóðarbókasafni Bandaríkjanna (Library of Congress).

 

Texti: Svanhildur Bogadóttir

Ljósmyndir: Jóhann Ólafur Kjartansson