Fréttasafn


Styttur opnunartími í júlí 2011

16.06.2011

Ekki verður um neina sumarlokun að ræða hjá Borgarskjalasafni Reykjavíkur í ár. Hins vegar verður opnunartími styttur í júlímánuði og verður safnið opið alla virka daga frá kl. 10 til 13.

Í ágúst verður aftur venjulegur opnunartími kl. 10 til 16.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem styttur opnunartími kann að valda.

 

15. júní 2011

Svanhildur Bogadóttir

borgarskjalavörður