Borgarskjalasafn lokað 10.-11. nóv. vegna ráðstefnu starfsmanna héraðsskjalasafna
01.11.2011
Dagana 10.-11. nóv. nk. verður haldin ráðstefna starfsmanna héraðsskjalasafna landsins. Allir starfsmenn Borgarskjalasafns munu sækja hana og verður safnið því lokað þessa daga.
Á ráðstefnunni verða tekin fyrir ýmis mál varðandi skjalastjórn sveitastjórna og innri mál skjalasafnanna.
Símaver borgarinnar mun sjá um símsvörun fyrir Borgarskjalasafn þessa daga og taka skilaboð til starfsmanna. Einnig er hægt að senda póst á borgarskjalasafn@reykjavik.is.
Ef um neyðartilvik er að ræða, er mögulegt að hafa beint samband við Gunnar Björnsson, skrifstofustjóra safnsins í síma 6647777.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda.
Svanhildur Bogadóttir, borgarskjalavörður