A- Á- B- C- D- E- F- G- H- I- Í- J- K- L- M- N- O- Ó- P- R- S- T- U- V- X- Y- Z- Þ- Æ- Ö

 
Breiðagerðisskóli (0,5 MB)
Starfsemi skólans hófst í Háagerði 1954, en var þá útibú frá Laugarnesskóla. Á efri hæð hússins voru 3 kennslustofur en í kallara var salur sem skipt var í tvennt með tjaldi til að búa til tvær kennslustofur. Vesturálma skólans var fyrst tekin í notkun 1956 en þá hóf Breiðagerðisskóli formlega starfsemi.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Breiðholtsskóli (0,43 MB)
Breiðholtsskóli tók til starfa 1969. Skólinn er með nemendur í 1. til 10. bekk. Kjörorð skólans er „árangur fyrir alla“. Skólinn er skipulagður þannig að kennarar sérhæfa sig í ákveðnum fögum eða tveimur til þremur árgöngum.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Bústaðir félagsmiðstöð (0,29 MB)
Bústaðir er félagsmiðstöð á vegum ÍTR, Tunguvegi 25, starfrækt af Frístundamiðstöðinni Kringlumýri. Markhópurinn eru börn og unglingar í 6. - 10. bekk. Áhersla er lögð á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir unglinga í 8. - 10. bekk.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Dalbrautarskóli (0,28 MB)
Dalbrautarskóli í Reykjavík hefur verið starfandi síðan frá árinu 1980 og var sérskóli rekinn af Fræðslumiðstöð Reykjavíkur samkvæmt samningi milli Reykjavíkurborgar,

Lesa nánar á vefsíðu
 
Einholtsskóli - Hlíðarhúsaskóli (0,25 MB)
Einholtsskóli var sérskóli fyrir unglinga sem geta ekki , samkvæmt mati á heildaraðstæðum og þá sérstaklega vegna félagslegra erfiðleika, stundað nám í almennum skóla.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Fellahellir félagsmiðstöð (0,44 MB)
Fellahellir opnaði formlega 17. nóvember 1974. Starfseminni í Fellahelli var hætt haustið 1998 og flutti í Miðberg. Skólinn yfirtók húsnæðið. Enn er áfram opið á vegum ÍTR tvisvar sinnum í viku í Fellaskóla. Skjöl send Borgarskjalasafni 1999.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Félagsmiðstöðin Þróttheimar (0,35 MB)
Þróttheimar er félagsmiðstöð á vegum ÍTR, starfrækt af Frístundamiðstöðinni Kringlumýri. Markhópurinn eru börn og unglingar í 5. - 10. bekk.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Fjölskylduráðgjöfin Samvist (0,52 MB)
Tilraunaverkefni Reykjavíkurborgar og Mosfellsbæjar frá hausti 1996 til aprílloka 1999. Sjá einnig Málasafn borgarstjóra.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Fjörgyn félagsmiðstöð (0,37 MB)
Félagsmiðstöðin Fjörgyn, Foldaskóla, tók til starfa 1.mars 1989 við hátíðlega athöfn. Soffía Pálsdóttir þáverandi forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar tók við lyklunum af þáverandi skólastjóra Arnfinni Jónssyni og borgarstjóra Reykjavíkur, Davíð Oddssyni. Nafnið Fjörgyn varð fyrir valinu en var það sótt í heima norrænnar goðafræði.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Fræðsluskrifstofa Reykjavíkurumdæmis (0,47 MB)
Gögn send Borgarskjalasafni árið 1996. Fræðsluskrifastofan, sem var ríkisstofnun var lögð niður 31. júlí 1996, ásamt Skólaskrifstofa Reykjavíkur, en í stað þeirra tók Fræðslumiðstöð Reykjavíkur starfa 1. ágúst 1996.

Lesa nánar á vefsíðu