A- Á- B- C- D- E- F- G- H- I- Í- J- K- L- M- N- O- Ó- P- R- S- T- U- V- X- Y- Z- Þ- Æ- Ö

 
Alþjóðleg Ungmennaskipti - AUS (1961) (0,02 MB)
Alþjóðleg samtök sem spruttu upp úr samstarfi kirkjudeilda í Bandaríkjunum og Þýskalandi við lok seinni heimstyrjaldarinnar. Ungmennum var gefið færi á því að dvelja eitt ár í framandi landi og kynnast menningu þess og siðum.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Alþýðuhús Reykjavíkur (0,06 MB)
Í þessari skrá kölluð Alþýðuhús Reykjavíkur eru skjöl sem fundust í Iðnó, stytting úr Iðnaðarmannafélagshúsinu Vonarstræti 3. Þau tilheyrðu ýmsum aðilum, sem á umræddum árum 1919 til1937, voru að meira eða minna leyti undir sama hatti; þ.e. Alþýðusambandi Íslands. Þarna er átt við eftirtalda aðila; Alþýðubrauðgerðina og Alþýðuprentsmiðjuna. Alþýðusamband Íslands, Alþýðuflokkinn og Alþýðublaðið.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Apollo - Klúbburinn (0,01 MB)
Jóhanna Jóhannesdóttir, kennari, fyrrum formaður Appollo - klúbbsins, félagsskapar sem kenndur er við Dale Carnegie, færir Borgarskjalasafni skjöl klúbbsins til varðveislu.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Badmintonsamband Íslands (0,27 MB)
Badmintonsamband Íslands, B.S.Í., var stofnað 5. nóvember 1967. B.S.Í er æðsti aðili um öll badmintonmál innan vébanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og er samband héraðssambanda og og íþróttabandalaga.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Barnaverndarfélag Reykjavíkur (0,02 MB)
Í skjalasafni þessu eru ýmis skjöl viðvíkjandi Barnaverndarfélagi Reykjavíkur og móðurfélögum þess. Einkum er um að ræða fundargerðarbækur frá ýmsum tímabilum. Aðgangur að skjalasafni þessu er skv. upplýsingalögum, stjórnsýslulögum eða öðrum lögum sem kunna að gilda um aðgang.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Barnavinafélagið Sumargjöf (0,26 MB)
Barnavinafélagið Sumargjöf var stofnað 11. apríl 1924. Í 2. grein laga félagsins sagði „Tilgangur félagsins er að stuðla að andlegu og líkamlegu heilbrigði og þroska barna í Reykjavík og vernda þau fyrir óhollum áhrifum“.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Bíliðnafélagið / Félag blikksmiða - Félag iðn- og tæknigreina (0,29 MB)
Bíliðnafélagið var stofnað árið 1991 með sameiningu Félags Bifvélavirkja og Félags Bílamálara. Ári síðar gekk Félag bifreiðasmiða inn í samstarfið. Við sameininguna voru í þessum þremur félögum um 690 manns og hefur þeim heldur fjölgað síðan. Bíliðnafélagið er nú sameinað afl bifreiðaiðngreina á Íslandi með ríflega 700 félagsmenn.

Lesa nánar á vefsíðu
 
BPW klúbburinn í Reykjavík (0,34 MB)
Kvennasamtökin BPW eða Business and Professional Women er alþjóðlegur félagsskapur, en samtökin voru stofnaður í Bandaríkjunum árið 1919. BPW hefur verið starfandi á Íslandi í yfir 30 ár. BPW klúbburinn á Íslandi var formlega stofnaður 16. ágúst 1979.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Bræðrafélagið í Reykjavík (0,01 MB)
Bræðrafélagið í Reykjavík var stofnað 1843-1844 af fyrirmönnum í bænum. Var hlutafélag þar sem hvert hlutabréf var 50 ríkisdalir að nafnverði og hluthafafé samtals 5000 ríkisdalir.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Byggingarfélag verkamanna í Reykjavík (0,28 MB)
Fyrstu lög um verkamannabústaði voru sett 1929 og samkvæmt þeim lögum var Byggingarfélag alþýðu stofnað í Reykjavík. Tíu árum seinna var lögunum síðan breytt; m.a. átti aðeins að vera eitt byggingarfélag í hverju sveitarfélagi, framlög ríkis og sveitarfélags átti að auka og um leið kom krafa á aukið eftirlit ríkis og sveitarfélaga með viðkomandi byggingarfélagi. Byggingarfélagi alþýðu var gefinn kostur á því að aðlaga sig nýjum lögum, en félagið sá sér það ekki fært. Þessi ágreiningur leiddi til þess að Byggingarfélag verkamanna var stofnað 5. júlí 1939.

Lesa nánar á vefsíðu