A- Á- B- C- D- E- F- G- H- I- Í- J- K- L- M- N- O- Ó- P- R- S- T- U- V- X- Y- Z- Þ- Æ- Ö

 
Verslunin Rangá (0,17 MB)
Skjöl færð Borgarskjalasafni 1994 af Sigrúnu Magnúsdóttur núverandi eiganda Verslunarinnar Rangáar og borgarfulltrúa.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Verslunin Skólavörðustíg 13 (0,17 MB)
Byggingarstarfsmenn munu hafa komið með poka af gömlum nótum og kvittunum sem átti að henda. Það er tilgáta starfsmanna Árbæjarsafns að þessir pappírar hafi fundist við framkvæmdir á Skólavörðustíg 13 síðari hluta árs 1994.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Vigfús Guðbrandsson og co (0,18 MB)
Sævar Karl Ólason, klæðskeri, Bankastræti 7, 101 R. færði Borgarskjalasafni eftirfarandi gögn til varðveislu. Vigfús Guðbrandsson og co var klæðskerafyrirtæki stofnað árið 1922. Sævar Karl lærði þar klæðskeraiðn og keypti fyrirtækið síðan.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Þórður Pétursson & Co (0,17 MB)
Þórður Pétursson var fæddur 15. apríl 1893 og lést 24. apríl 1939. Hann rak skóverslunina Þórður Pétursson & Co. að Bankastræti 7 um árabil.

Lesa nánar á vefsíðu
 
Ölgerðin Egill Skallagrímsson (0,17 MB)
Ölgerðin Egill Skallagrímsson var stofnuð 1919. Helgi Sigurðsson, starfsmaður í Árbæjarsafni, afhenti safninu skjölin 27. júní 2001. Skjöl þessi virðast hafa tilheyrt Kristni Lýðssyni og eru mjög illa farin og varð að henda nokkrum bókum.

Lesa nánar á vefsíðu