Spurt og svarað


Ljósritun og skönnun skjala


Hægt er að fá afrit af flestum skjölum sem í safninu eru. Um er að ræða ljósritun og skönnun. Gestir á lesstofu snúi sér til starfsmanns þar. Hann afgreiðir ljóritunarbeiðnir sem ná allt að 10 blaðsíðum. Ljósritunarbeiðnir umfram 10 blaðsíður skal gera skriflega og má gera ráð fyrir allt að viku afgreiðslufresti.
 

Verð á ljósritum: A4 50 kr. – A3 50 kr. – A2 100 kr.
Verð á skönnun: 1000 kr.


Verð á cd: 600 kr.


Varðveisluástand skjala er grunnviðmið þegar beiðni um ljósritun er metin. Þannig er ekki heimilt að ljósrita:


- Skjöl með innsiglum
- Þungar bækur í stóru broti
- Bækur með lélegu bókbandi
- Pappír sem er stökkur og brothættur
- Pappír sem er rifinn, trosnaður eða fúinn
- Skjöl með daufu bleki
- Skjöl í stóru broti sem ná út fyrir gler á ljósritunarvél

Þau skjöl sem ekki er heimilt að ljósrita, er þess í stað hægt að fá ljósmynduð eða skönnuð. Reynt er að afgreiða afrit eins fjótt og kostur er en afrit mikils fjölda skjala og skjala sem eru vandmeðfarin getur tekið langan tíma. Verið getur að ekki sé unnt að verða við beiðni um afrit ef skjöl eru illa farin eða í viðgerð.

Share

Til baka...