Skjalasöfnin kynna sig laugardaginn 14. nóvember nk.

Söfnin verða með sýningar á skjölum sem tengjast þema dagsins "Konur og kvenfélög", boðið verður upp á spennandi fyrirlestra og kynningar á vefum, kaffiveitingar, fræðsla og sitthvað verður gert fyrir börnin. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Á sérstökum vef skjaladagsins 2009 eru sýningar á skjölum tengdum konum og kvenfélögum frá flestum skjalasöfnum landsins.

http://www.skjaladagur.is

Dagskrá:

Kl. 11:00 Formleg opnun dagskrár.

Kl. 11:15 Erla Hulda Halldórsdóttir: Kvenfélögin, kvenfrelsið og virði kvenna.

Kl. 12:00 Þorgerður H. Þorvaldsdóttir: Snoðkollur og flókatryppi.

Kl. 12:30 Anna Th. Rögnvaldsdóttir: Vefur um Ólaf Thors.

Kl. 13:00 Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, opnar nýjan manntalsvef Þjóðskjalasafns.

Kl. 13:30 Ólöf Garðarsdóttir: Um kynferði í manntölum á 18. og 19. öld.

Kl. 14:00 Njörður Sigurðsson: Einstæðar mæður og fósturbörn 1901-1940.

Kl. 14:30 Svanhildur Bogadóttir: Vefur um Bjarna Benediktsson.

Ókeypis aðgangur og allir velkomnir jafnt börn og fullorðnir.

Skjalasöfnin utan Reykjavíkur verða einnig mörg með fjölbreytta dagskrá og hér má sjá hana:

http://skjaladagur.is/dagskra.html

Hér má sjá fleiri ljósmyndir frá skjaladeginum 2008