Fara í efni
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
  • Líf og störf
    • Æskuár
    • Fjölskylda og vinir
    • Starfsævin
    • Ævisagan í myndum
  • Skjalaskrá
    • Um skjalasafnið
    • Aðgengi að safninu
    • Tilvitnanir
  • Áhugavert efni
    • Ræður og greinar
    • Myndir
    • Hljóðskrár
    • Myndband
    • Ólafs Thors minnst
    • Tenglar
  • Borgarskjalasafn
  • Bjarni Benediktsson
  • Ólafur Thors
Ólafur Thors / Áhugavert efni / Myndir / Fjölskyldan

Fjölskyldan

  • 159 stk.
  • 26.06.2023
Elliði, sumarbústaðurinn sem Ólafur Thors byggði við Þingvallavatn.
Kjartan Thors með Hrafnhildi dóttur sína um 1919.
Um 1943. Thor Thors sendiherra í Íslands í Washington og Marta Ólafsdóttir Thors.
Um 1943. Thor Thors sendiherra fyrir utan sendiráð Konungsríkisins Íslands.
Um 1943. Thor Thors, Margrét Thors og Ágústa Ingólfsdóttir Thors á heimili sendiherrahjónanna í Washington. Konan yst til vinstri er bandarískur blaðamaður.
Um 1943 Fyrir utan sendiráð Íslands í Washington. Frá vinstri: Þórhallur Ásgeirsson, Marta Thors, Ágústa Ingólfsdóttir Thors, Thor Thors, Gígja Björnsson, Henrik Sv. Björnsson. Sitjandi til hægri er Margrét dóttir Thors og Ágústu en hin konan er ekki þekkt.
Um 1943. Thor Thors sendiherra.
1944. Á stofnfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins  í Bretton Woods, frá vinstri: Svanbjörn Frímansson, Ásgeir Ásgeirsson, Marta Thors og Magnús Sigurðsson bankastjóri.
1944. Á stofnfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins  í Bretton Woods, frá vinstri: Svanbjörn Frímansson, Ásgeir Ásgeirsson, Marta Thors og Magnús Sigurðsson bankastjóri.
Um 1942. Áramótagleði í Washington, Helga og Ólafur Johnson og Marta Thors (á milli þeirra).
Um 1937. Marta Thors í Austurríki.
Um 1937. Marta Thors í Austurríki.
Um 1956. Systurnar Marta og Ingibjörg Thors.
Um 1953. Systurnar Guðrún og Ólöf Pétursdóttir tala í síma á Parísarárum sínum.
Um 1937. Marta Thors í Austurríki.
Um 1975. Ingibjörg Thors (sitjandi) með börnum sínum og tengdadóttur. Frá vinstri: Thor Ó. Thors, Ingibjörg Gíslason, Margrét Thors, Stefanía Bjarnadóttir Thors.
Um 1975. Ingibjörg Thors (sitjandi) með börnum sínum og tengdabörnum. Frá vinstri: Þorsteinn Gíslason, Ingibjörg Gíslason, Margrét Thors, Stefanía Bjarnadóttir Thors.
Um 1975. Þorsteinn Gíslason, Ingibjörg Thors Gíslason og Thor Ó. Thors.
Um 1940. Hrafnhildur Kjartansdóttir Thors.
Bræðurnir Haukur, Ólafur og Richard Thors við Skúlagötu.
Ólafur Thors með stúlkunum sínum, frá vinstri: Tengdadóttirin Stefanía Bjarnadóttir, systurnar Ingibjörg og Margrét Thors og móðir þeirra Ingibjörg  framan við skrifborð Ólafs í kontór hans að Garðastræti 41.
Systurnar Ingibjörg og Margrét, Ólafur og Ingibjörg Thors í kontór Ólafs að Garðastræti 41.
Framan við málverk Gunnlaugs Blöndals af Ingibjörgu Thors í dagstofunni að Garðastræti 41, Ólafur og Ingibjörg Thors, milli þeirra situr tengdadóttirin Stefanía Bjarnadóttir, en systurnar Margrét og Ingibjörg standa.
Í garðinum á Garðastræti 41 um 1957. Ólafur og Ingibjörg Thors með dætrum sínum, Mörtu (t.v.) og Ingibjörgu.
Ólafur Thors og Pétur Benediktsson ræðast við á steini.
Ólafur Thors horfir yfir Hvalfjörð.
Ólafur Thors með dóttur sinni Ingibjörgu.
Margrét dóttir Ólafs og Ingibjargar Thors.
Thor Ó. Thors.
Ágústa Ingólfsdóttir Thors, sendiherrafrú í Washington.
Margrét, dóttir Ágústu og Thors Thors.
Ingibjörg á níræðisaldri.
Ingibjörg Thors níræð.
Ingibjörg Thors á níræðisaldri með tengdadóttur sinni Stefaníu Bjarnadóttur Thors.
Lára Bogason, systir Ingibjargar Thors.
Lára Bogason, systir Ingibjargar Thors.
Garðastræti 41 séð frá garðinum.
Framan  við Fríkirkjuveg 11 vorið 1916. Frá vinstri: Haukur Thors, Margrét Þorbjörg, systurnar Kristjana og Kristín,  óþekkt kona, Kjartan og Ágústa Thors, Ólafur og Ingibjörg Thors, vorið 1916.
Í garðinum á Garðastræti 41 um 1957: Ólafur og Ingibjörg Thors, með dætrum sínum, Mörtu (t.v.) og Ingibjörgu.
Um 1919. Ólafur Thors með Thorsa son sinn í garðinum við Grundarstíg 24.
Um 1919. Thor Jensen Thors, sonur Ólafs og Ingibjargar.
Um 1960. Ingibjörg Indriðadóttir Thors við Lágafell.
Um 1947. Ólafur Thors með alnafna sinn ársgamlan á Þingvöllum.
Um 1930. Kjartan Thors, Þórður Albertsson og Thor Thors.
Um 1917. Ingibjörg Thors með frumburð sinn Thorsa ársgamlan.
Um 1917. Ingibjörg Thors með frumburð sinn Thorsa ársgamlan.
Um 1920. Ingibjörg Thors með Mörtu á öðru ári.
Um 1918. Ingibjörg Thors á tröppunum við Fríkirkjuveg 11.
Um 1918. Svilkonurnar Ingibjörg  Indriðadóttir Thors og Ágústa Björnsdóttir Thors.
Um 1918 Kjartan og Ágústa Thors með dóttur sína Margréti Louise.
Thor Jensen – Thorsi – sonur Ólafs og Ingibjargar við Haffjarðará 1920.
Ólafur Thors með Thorsa á hestinum Hrímni við Haffjarðará 1920.
Ingibjörg Thors hugar að Margréti yngstu dóttur sinni í garðinum við Grundarstíg 24, sumarið 1929.
Ólafur og Ingibjörg Thors með dætrum, tengdadætrum og barnabörnum 1954. Sitjandi (frá vinstri): Ólafur Thors, Þorstein Þorsteinsson (Gíslason), bræðurnir Bjarni og Ólafur Thors og Ólöf Pétursdóttur og Ingibjörg Thors. Aftari röð frá vinstri: Marta Thors með dóttur sína Guðrúnu Pétursdóttur, Ingibjörg Gíslason með son sinn Ólaf Gíslason, Margrét Thors með dóttur sína Ingibjörgu Þorsteinsdóttur Jónsson, og Stefanía Thors með son sinn Thor Thors yngri.
Systurnar Ingibjörg og Marta Thors 1954  með (frá vinstri) Ólöfu Pétursdóttur, Ólaf Gíslason og Guðrúnu Pétursdóttur. Aftan við þær standa (frá vinstri) Ólafur Thors, Bjarni Thors og Þorsteinn Þorsteinsson (sonur Ingibjargar).
Barnabörn Ólafs og Ingibjargar Thors 1954 (frá vinstri) Ólafur Thors, Guðrún Pétursdóttir, Bjarni Thors, Ólöf Pétursdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson.
Ólafur Thors með nafna sinn, Ólaf Tryggvason Thors, son Margrétar Thors.
Margrét, dóttir Ólafs og Ingibjargar Thors 1930.
Um 1919. Thor Jensen yngri - Thorsi - sonur Ingibjargar og Ólafs Thors.
1920. Systkinin góðu, Thor Jensen yngri (Thorsi) og Marta Thors (Sidda).
1920. Thor Jensen yngri - Thorsi - sonur Ingibjargar og Ólafs Thors.
1920. Thor Jensen yngri - Thorsi - sonur Ingibjargar og Ólafs Thors.
1920. Systkinin góðu, Thor Jensen yngri (Thorsi) og Marta Thors (Sidda).
1920. Ólafur Thors með Thorsa á hestinum Hrímni við Haffjarðará.
Um 1926. Frænkurnar Margrét Louise Kjartansdóttir Thors og Marta Ólafsdóttir Thors.
Um 1926. Aftari röð: frænkurnar Margrét Louise Kjartansdóttir Thors og Marta Ólafsdóttir Thors, framan við þær eru óþekkt vinkona og Hrafnhildur Kjartansdóttir Thors.
Um 1922. Ágústa Björnsdóttir Thors með Margréti Louise dóttur sína og Mörtu Ólafsdóttur Thors í garðinum vði Grundarstíg 24.
Um 1920. Systkinin Thors Jensen yngri og Marta Thors, börn Ólafs og Ingibjargar í garðinum við Grundarstíg 24.
Um 1920. Frændsystkinin Thors Jensen yngri og Margrét Louise Thors í garðinum við Grundarstíg 24.
Um 1920. Thor Jensen yngri (Thorsi) og frænkur hans  Margrét Louise og Hrafnhildur Kjartansdóttir Thors (í vagninum).
1920 við Haffjarðará. Thor Jensen yngri (Thorsi), Margrét Louise Kjartansdóttir og Marta Ólafsdóttir.
Um 1928. Systkinin Ingibjörg, Thor Ó. og Marta Thors.
Um 1923. Thor Ó. Thors, sonur Ólafs og Ingibjargar Thors.
1920. Systkinin Thors Jensen yngri og Marta Thors, börn Ólafs og Ingibjargar Thors.
Ingibjörg og Ólafur Thors á götu í París 1951.
Ingibjörg og Ólafur Thors stíga frá borði í vígsluferð Gullfaxa.
Ólafur og Ingibjörg erlendis.
Ingibjörg og Ólafur Thors ásamt Thor Thors í New York.
Ingibjörg og Ólafur Thors í New York.
1920. Veiðistöngin gerð klár, Ólafur Thors, Thorsi og Ingibjörg Thors.
Um 1948. Ingibjörg og Ólafur Thors í París.
Um 1951. Ólafur Thors og Ingibjörg á Spáni.
Um 1958. Ingibjörg Gíslason Thors og Ólafur Thors faðir hennar við bústað Kjartans Thors við Þingvallavatn.
Um 1930. Garðastræti 41, hús Ingibjargar og Ólafs Thors, teiknað af Sigurði Guðmundssyni.
Um 1930. Í forgrunni er Garðastræti 41, hús Ingibjargar og Ólafs Thors.
1961. Margrét Thors heldur á Ólafi Tryggvasyni á skírnardaginn í stofunni á Garðastræti 41. Afi barnsin, Snæbjörn Jónsson bóksali fylgist með.
1961. Skírnarveisla Ólafs Tryggvasonar í stofunni á Garðastræti 41. Frá vinstri: Guðrún Pétursdóttir, Margrét Thors með Ólaf son sinn; í bakgrunni eru Ólöf Pétursdóttir (með gleraugu) og móðir hennar Marta Thors innst við vegginn.
1961. Skírnarveisla Ólafs Tryggvasonar í stofunni á Garðastræti 41. Frá vinstri: Ingibjörg og Marta Thors, óþekkt kona og Ólöf Pétursdóttir.
1961. Skírnarveisla Ólafs Tryggvasonar í stofunni á Garðastræti 41. Frá vinstri: óþekkt kona, Margrét Thors , Ólafur Thors og Anna Þorsteinsdóttir Jónsson, dóttir Margrétar og Þorsteins Jónssonar flugstjóra. Á veggnum hangir málverk Gunnlaugs Blöndals af Ingibjörgu Thors.
1961. Skírnarveisla Ólafs Tryggvasonar í stofunni á Garðastræti 41. Frá vinstri: afarnir Ólafur Thors og Snæbjörn Jónsson ræðast við, Guðrún Pétursdóttir í forgrunni.
1961. Skírnarveisla Ólafs Tryggvasonar í stofunni á Garðastræti 41. Ólafur og Ingibjörg Thors.
1961. Skírnarveisla Ólafs Tryggvasonar í stofunni á Garðastræti 41. Marta Thors heldur á systursyni sínum, skírnarbarninu,  en Ólafur Thors lætur vel að honum.
1961. Skírnarveisla Ólafs Tryggvasonar í stofunni á Garðastræti 41. Marta Thors stendur í dyrum dagstofunnar og til vinstri situr afabóðir skírnarbarnsins, Ásmundur Jónsson (bróðir Snæbjarnar bóksala Jónssonar).
1961. Skírnarveisla Ólafs Tryggvasonar í stofunni á Garðastræti 41. Snæbjörn Jónsson og Lára kona hans.
1961. Skírnarveisla Ólafs Tryggvasonar í stofunni á Garðastræti 41. Ólafur Thors og Snæbjörn Jónsson.
Ingibjörg, Marta og Ólafur Thors á Spáni 1952.
Marta, Ólafur Thors og Pétur Benediktsson á útsýnisstað. Spánn 1951.
Ólafur og Ingibjörg Thors með Pétri Benediktssyni tengdasyni sínum á Spáni 1951.
Ingibjörg og Ólafur Thors á Spáni 1951.
Pétur Benediktsson nær góðu sambandi við dyravörðinn á Hótel Caesar Augustus.
Pétur Benediktsson, Ólafur og Ingibjörg Thors á sólarströnd 1951.
Marta, Ólafur og Ingibjörg Thors á sólarströnd 1951.
Ingibjörg og Ólafur Thors á Spáni 1951.
Á bakka Haffjarðarár um 1920. Frá vinstri: óþekktur maður, Ingibjörg og Ólafur Thors; Ágústa Björnsdóttir Thors og Kjartan Thors.
Um 1920. Tekið í spil undir húsveggnum við Haffjarðará. Frá vinstri: Thorsi litli, Kjartan Thors, Richard Thors og Helgi Árnason á Vogi.
Neðri húsin við Haffjarðará (málari óþekktur).
Við Haffjarðará um 1920. Svilkonurnar Ingibjörg Thors og Ágústa Björnsdóttir Thors.
Við Haffjarðará um 1925. Ingibjörg Thors og hestur Ólafs, Hrímnir.
Um 1920. Ingibjörg Thors með lax á önglinum, Ólafur Thors fylgist með.
Um 1930. Ingibjörg og Ólafur Thors við veiðihúsið.
Um 1930. Jóna og Richard Thors huga að veiði dagsins við Haffjarðará.
Ingibjörg og Gunnar Indriðabörn.
Ingibjörg Indriðadóttir innan við 10 ára.
Ingibjörg Indriðadóttir um 12 ára.
Ingibjörg Indriðadóttir um 15 ára.
Ingibjörg Indriðadóttir um 16 ára.
Ingibjörg Indriðadóttir um það leyti sem þau Ólafur Thors giftust.
Ingibjörg Indriðadóttir um það leyti sem þau Ólafur Thors giftust.
Ingibjörg Thors nýgift um 1916.
Ingibjörg Thors nýgift um 1916.
Ingibjörg Thors með frumburð sinn Thor Jensen 1917.
Ingibjörg Thors með frumburð sinn Thor Jensen 1917.
Ingibjörg Thors með frumburð sinn Thor Jensen 1917.
Ingibjörg Thors með börnum sínum. Frá vinstri: Marta, Thor, Ingibjörg.
Ingibjörg Thors um 1955.
Ingibjörg Thors um 1955.
Ingibjörg Thors um 1955.
Ingibjörg Thors í anddyrinu á Garðastræti 41.
Ingibjörg Thors á leið á kjörstað.
Ingibjörg Thors á svölunum á Elliða.
Mæðgurnar Ingibjörg og Ingibjörg Thors á svölum Elliða.
Amman Ingibjörg Thors með barnabörnin Ólöfu og Guðrúnu Pétursdætur og Ólaf Gíslason á milli þeirra.
Amman Ingibjörg Thors með barnabörnin Ólöfu og Guðrúnu Pétursdætur og Ólaf Gíslason á milli þeirra.
Ingibjörg Thors við sumarbústað Kjartans mágs síns 1959, Guðrún Pétursdóttir í baksýn.
Mæðgurnar Ingibjörg og Ingibjörg Thors með Ólaf Gíslason á svölum Elliða.
Ingibjörg og Ólafur Thors á verönd Elliða. Aðeins glyttir í Ingibjörgu dóttur þeirra og Þorstein son hennar, sem Ólafur horfir á með hlýju.
Dóttirin Marta og Ólafur Thors á svölum Elliða.
Ólafur og Ingibjörg Thors á Þingvöllum.
Erlendir vinir í heimsókn í Elliða: Phyllis Lökvik, Pétur Benediktsson, Ole Lökvik saltfisksali og ræðismaður Íslendinga á Spáni og Ólafur Thors.
Erlendir vinir í heimsókn í Elliða: Phyllis Lökvik, Pétur Benediktsson, Ole Lökvik saltfisksali og ræðismaður Íslendinga á Spáni og Ólafur Thors.
Við sumarbústað Kjartans Thors sumarið 1959. Sitjandi Betty Guðmundsdóttir og Ólafur Thors. Hjá þeim stendur Ingibjörg Thors, en fremstar eru systurnar Ólöf og Guðrún Pétursdætur.
Elliði, sumarbústaður Ólafs og Ingibjargar Thors við Þingvallavatn.
Ólafur Thors á bátnum sínum á Þingvallavatni.
Ólafur og Ingibjörg koma í land við Elliða.
Ingibjörg Thors yngri með systurdætur sínar Ólöfu og Guðrúnu Pétursdætur í brekkunni ofan við Elliða. Ólafur Gíslason veltist um á bak við þær.
Fjölskyldan við Haffjarðará um 1920. Sitjandi frá vinstri: systkinin Marta og Thorsi, Margrét Louise, systkinin Margrét og Lorentz Thors. Standandi frá vinstri: Ólafur og Ingibjörg, Margrét Þorbjörg, Kjartan og Ágústa Thors, systurnar Kristín og Kristjana og loks Hilmar.
Veiðihúsið við Haffjarðará um 1940. Frá vinstri: Margrét Þorbjörg, systurnar Margrét Louise og Sigríður Kjartansdætur Thors, Þórunn Sigurðardóttir vinkona Sigríðar, Kjartan, Ólafur, Ingibjörg, óþekkt kona, Ágústa Björnsdóttir og Thor Jensen.
Ingibjörg Thors með feng úr ánni.
Veiðihúsið við Haffjarðará um 1920.  Frá vinstri: Helgi á Vogi, Gunnlaugur Claessen (?), Ólafur Thors og óþekktur maður.
Ingibjörg og Ólafur Thors.
Helgi á Vogi við veiðhúsið, um 1920.
Ingibjörg og Ólafur Thors við Haffjarðará.
Á tröppum veiðihússins við Haffjarðará um 1936. Sigríður Kjartansdóttir Thors (líklega) og þá systurnar Ingibjörg, Margrét og Marta Ólafsdætur Thors.
Ingibjörg Thors Gíslason með son sinn Þorstein Þorsteinsson um 1953.
Systkinin Thor og Marta Thors um 1938.
Ólafur Thors slakar á með vindil við Haffjarðará.
Bræðurnir Ólafur og Thor Thors hvíla sig í brekku við Haffjarðará. Á á bak við þá sést í Ingibjörgu Thors.
Ólafur Thors stillir feng milli sólstóla á Haffjarðará um 1930.
Um 1918. Heimsókn Alfreds Raavads til Thors Jensens bróður síns. Frá vinstri: Margrét, Lorenz, Kristjana, Alfred, Thor yngri, óþekktur drengur, Margrét Þorbjörg og Thor Jensen.

Valmynd

  • Ræður og greinar
  • Myndir
  • Hljóðskrár
  • Myndband
  • Ólafs Thors minnst
  • Tenglar
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
  • Tryggvagata 15 - 3.h.
  • 101 Reykjavík
  • s. 411 6060
  • borgarskjalasafn@reykjavik.is