Fara í efni
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
  • Líf og störf
    • Æskuár
    • Fjölskylda og vinir
    • Starfsævin
    • Ævisagan í myndum
  • Skjalaskrá
    • Um skjalasafnið
    • Aðgengi að safninu
    • Tilvitnanir
  • Áhugavert efni
    • Ræður og greinar
    • Myndir
    • Hljóðskrár
    • Myndband
    • Ólafs Thors minnst
    • Tenglar
  • Borgarskjalasafn
  • Bjarni Benediktsson
  • Ólafur Thors
Ólafur Thors / Áhugavert efni / Myndir / Stjórnmálamaðurinn

Stjórnmálamaðurinn

  • 127 stk.
  • 26.06.2023
Ólafur Thors heldur ræðu við nýbyggingu DAS á sjómannadaginn.
Ólafur Thors heldur þjóðhátíðarávarp 17 júní 1961.
Ólafur Thors á svölum Alþingishússins 17. júní.
Ásgeir Ásgeirsson og Ólafur Thors á Austurvelli 17. júní 1961.
Ólafur Thors, óþekktur maður og stúdína á Austurvelli 17. júní 1961.
1950-1955. Ólafur Thors heldur þjóðhátíðarræðu í Þrastarskógi.
Ólafur Thors og Ásgeir Ásgeirsson á Austurvelli 17. júní 1961.
Ólafur Thors og Ásgeir Ásgeirsson á Austurvelli 17. júní 1961.
Ólafur Thors og Ásgeir Ásgeirsson á Austurvelli 17. júní 1961. Á bak við þá stendur nýstúdínan Sigríður Arnbjarnardóttir.
Ólafur Thors heldur ávarp 1. maí 1939.
Á tíma Utanþingsstjórnarinnar 1943-44. Ólafur stendur við gluggann og yst til hægri má sjá Steingrím Aðalsteinsson og Vilhjálm Þór í stól utanríkisráðherra.
Ólafur Thors í ræðustól á Alþingi. Aftari röð frá hægri: Bjarni Benediktsson, Kjartan Jóhannsson, og Jóhann Hafstein. Fremri röð frá hægri: Sigurður Bjarnason frá Vigur, Sigurvin Einarsson, óþekktur, Karl Kristjánsson, óþekktur, Friðjón Þórðarson yst til hægri.
Ólafur Thors í ræðustól á Alþingi. Aftari röð frá hægri: Bjarni Benediktsson, Kjartan Jóhannsson, og Jóhann Hafstein. Fremri röð frá hægri: Sigurður Bjarnason frá Vigur, Sigurvin Einarsson, óþekktur, Karl Kristjánsson, óþekktur, Friðjón Þórðarson yst til hægri.
Setning Alþingis, Ólafur Thors í ræðustól, Ásgeir Ásgeirsson forseti hlýðir á. Yst til vinstri sést í hnakkann á Ragnhildi Helgadóttur. Fjær, frá vinstri: Skúli Guðmundsson, Friðjón Skarphéðinsson, Karl Guðjónsson, Jónas, Finnbogi Rútur Valdimarsson, Alfreð Gíslason (með gleraugu), Hermann Jónasson og Matthias Á. Matthiesen með hönd undir kinn.
Ólafur Thors les úr blaði í ræðustól þingsins um 1960.
Í Alþingisgarðinum: Ólafur Thors, Stefán Jóhann Stefánsson og Hermann Jónasson.
Ólafur Thors á leið í þingið 1963.
Ólafur Thors í dyrum Alþingis 1963.
Ólafur Thors í ræðustól Alþingis um 1955.
Ólafur Thors fær sér pípu í hléi.  Aftan við hann eru Lúðvík Jósepsson og Hannibal Valdimarsson, en yst til vinstri er Finnbogi Rútur Valdimarsson.
Ólafur Thors í ræðustól Alþingis um 1960. Emil Jónsson situr við gluggann.
Ólafur Thors í ræðustól um 1960.
Ólafur Thors og Jón Helgason.
Óþekktur maður, Jón Helgason og Ólafur Thors.
Ólafur Thors í skoðunarferð í Carlsberg verksmiðjunni í Kaupmannahöfn.
Nýbygging DAS vígð.
Ólafur Thors tekur á móti Konrad Adenauer Þýskalandskanslara.
Adenauer, Kristján Albertsson og Ólafur Thors.
Konrad Adenauer og  Ólafur Thors.
Konrad Adenauer og  Ólafur Thors.
Emil Jónsson, Konrad Adenauer og Ólafur Thors.
Ólafur Thors og Konrad Adenauer á Þingvöllum.
Konrad Adenauer færir Ólafi Thors gjöf.
Bjarni Guðmundsson blaðafulltrúi segir gestum frá Þingvöllum í heimsókn Konrads Adenauers til Íslands. Adenauer lengst til vinstri en Ólafur Thors við hlið Bjarna.
Ólafur Thors og David Ben Gurion ásamt eiginkonum og dætrum. Frá vinstri: Ólafur Thors, frú Ben Gurion, Marta Thors, dóttir Ben Gurion, Ingibjörg Thors, David Ben Gurion.
Ólafur Thors  og David Ben Gurion ásamt eiginkonum og dætrum sínum. Frá vinstri: Ólafur Thors, frú Ben Gurion, Marta Thors, dóttir Ben Gurion, Ingibjörg Thors, David Ben Gurion.
Heimsókn Davids Ben Gurion. Sveinn Einarsson verkfræðingur útskýrir Geysissvæðið fyrir gestunum. Yst til vinstri: Sigurjón Sigurðsson lögreglustjóri, frú Ben Gurion, yst til hægri er Ólafur Thors.
Ólafur Thors og Kristinn Guðmundsson taka á móti Friðriki Danakonungi og Ingiríði drottningu 1956.
Ólafur Thors og Friðrik Danakonungur heilsast.
Á Bessastöðum 1956. Friðrik Danakonungur og frú Dóra Þórhalsdóttir forsetafrú, síðan Ingiríður drottning og Ásgeir Ásgeirsson forseti, yst til vinstri er Ólafur Thors en yst til hægri Sigurður Nordal og Kristinn Guðmundsson aftast í salnum.
Friðrik Danakonungur, Ingibjörg Thors og Ásgeir Ásgeirsson forseti.
Veisla til heiðurs dönsku konungshjónunum, Ólafur Thors ávarpar heiðursgestina.
Ólafur Thors og Friðrik Danakonungur í hrókasamræðum, Ingiríður drottning skemmtir sér vel, Ingibjörg Thors og Ásgeir Ásgeirsson utar við borðið.
Ingibjörg og Ólafur Thors ásamt Friðriki Danakonungi 1956.
Ólafur Thors og Hörður Helgason með erlendum gestum.
Ólafur Thors og Hörður Helgason með erlendum gestum.
Ólafur Thors og Tove Segelcke á Þingvöllum.
Ólafur Thors og Harold McMillan.
Ólafur Thors og Joseph Lunsch framkvæmdastjóri NATO.
Ólafur Thors með erlendum blaðamanni.
Óþekktur maður, Ólafur Thors.
Á Allsherjarþingi SÞ í París 1948. Fremst situr frú Georgia Björnsson forsetafrú, Standandi frá vinstri: Bjarni Guðmundsson, Thor Thors, Magnea Magnúsdóttir, Hermann Jónasson, Ingibjörg Thors, Ólafur Thors, Pétur Benediktsson, Valtýr Stefánsson, Kristín Jónsdóttir, óþekkt kona og Kristján Albertsson.
Dwight Eisenhower Bandaríkjaforseti kemur við á Íslandi. Frá vinstri: Ásgeir Ásgeirsson, óþekktur, Dwight Eisenhower, óþekktur, Ólafur Thors, frú Dóra Þórhallsdóttir, frú Eisenhower (?).
Ólafur Thors kynnir Lyndon B. Johnson Bandaríkjaforseta og Gylfa Þ. Gíslason.
Norrænir fyrirmenn í heimsókn 1956, frá vinstri: Birgir Thorlacius, Agnar Kofoed Hansen, Hörður Bjarnason, Sigurður Nordal, gestur, Ólafur Thors, á bak við hann ókunnur, Gígja Björnsson yst til hægri.
Ólafur Thors ásamt Hans Hedtoft forsætisráherra Dana á fundi í Osló.
Ólafur Thors ásamt gesti á fundi norrænna ráðherra á Þingvöllum.
Norrænir forsætisráðherrar á Þingvöllum frá vinstri: Finnski ráðherrann, Viggo Kampman (D), Einar Gerhardsen (N), Ólafur Thors og Tage Erlander (S).
Ólafur Thors með erlendum gestum.
Ólafur Thors, Bjarni Benediktsson og Jón Pálmason frá Akri.
Ólafur Thors í ræðustól á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins í Valhöll á Þingvöllum 1943. Til vinstri situr Pétur Magnússon fundarstjóri, en til hægri þeir Gunnar Espólín og Friðrik Þórðarson.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins í Valhöll á Þingvöllum 1943.
Á landsfundi í Sjálfstæðishúsinu. Frá vinstri: Ólafur Thors, Bjarni Benediktsson, Eyjólfur Jóhannsson í Mjólkurfélaginu í ræðustól og ritari er Jónas Rafnar.
Landsfundargestir Sjálfstæðisflokksins í Sjálfstæðishúsinu sennilega um 1960. Fremstir eru þeir Alfreð Guðmundsson og Magnús Jónsson frá Mel við þriðja mann. Með gleraugu yst til vinstri er Ólafur Þórðarson frá Laugabóli forstjóri Jökla h.f. Yst og fremst til hægri er Már Elísson fiskimálastjóri. Við þriðju röð borða hægra megin í salnum situr Lárus Jóhannesson, vinstra megin við hann er Jóhannes Zoëga, vinstra megin við hann er Benedikt Blöndal og Páll Björnsson við hans hlið, en Axel Jónsson aftan við hann. Fyrir miðjum sal vinstra megin er Jakobína Mathiesen.
Ólafur Thors í ræðustól á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins 1959 (?) Jón Pálmason frá Akri er fundarstjóri, en Alfreð Gíslason og Magnús Jónsson frá Mel ritarar.
Á fundi um landbúnaðarmál sem Samband ungra Sjálfstæðismanna stóð fyrir. Ólafur Thors í ræðustól, Gunnar Sigurðsson á Seljabrekku er ritari og Ásgeir Pétursson formaður SUS fundarstjóri.
Fundur á vegum Sjálfstæðisflokksins í húsnæði VR. Í fremstu röð frá vinstri: Jón Sigurðsson á Reynistað, og Gunnar Thoroddsen. Önnur röð: Óttarr Möller, Ingólfur Flygenring , Jóhann Þ. Jósepsson, Ásgeir Pétursson, Alfreð Gíslason og Sigurður Ágústsson. Þriðja röð frá vinstri: Ásgeir Sigurðsson skipstjóri, Hallgrímur Hallgrímsson í Shell, Thor Ó Thors, Eyjólfur Konráð Jónsson og Hafsteinn Baldursson. Aftar eru Páll S. Pálsson, Þór Vilhjálmsson og Ragnhildur Helgadóttir; Einar Sigurðsson sést á milli þeirra en Þorvaldur Garðar Kristjánsson framan við Ragnhildi og Geir Hallgrímsson við hlið hennar. Yst við vegginn hægra megin situr Sveinn Benediktsson og Stefán Jónsson vinstra megin við hann, en aftast í horninu situr Gísli Jónsson frá Bíldudal.
Á Landsfundi. Ólafur Thors í ræðustól, Bjarni Benediktsson fundarstjóri til vinstri, óþekktur ritari til hægri.
Gunnar Thoroddsen, Ólafur Thors og óþekktur Keflvíkingur í ræðustól.
Ólafur Thors í ræðustól.
Ólafur Thors gluggar í minnispunkta.
Vígsluflug Gullfaxa. Ólafur og Ingibjörg Thors stíga frá borði og heilsa þýska sendiherranum.
Ólafur og Ingibjörg Thors heilsa þýsku sendiherrahjónunum við komu Gullfaxa til landsins.
Tekið á móti Gullfaxa. Ólafur Thors heilsar Erni Johnsson og Guðmundi Vilhjálmssyni.
Tekið á móti Gullfaxa, frá vinstri: Kristján Albertsson, Ólafur og Ingibjörg Thors, Kristinn Guðmundsson utanríkisráðherra og frú, Birgir Thorlacius ráðuneytisstjóri, Henrik Sv. Björnsson sendiherra, þýska sendiherrafrúin, Guðmundur Vilhjálmsson, Örn Johnson.
Tekið á móti Gullfaxa. Fremst á myndinni er Ingibjörg Thors en aftan við hana eru Kristján Albertsson, þýski sendiherrann og Ólafur Thors.
Á sjómannadaginn 1938. Ólafur Thors heldur ræðu á Skólavörðuholti.
Ólafur og Ingibjörg ásamt Helga Ingvarssyni lækni á Vífilstöðum.
Ólafur Thors heldur ræðu undir Ingólfsfjalli.
Ingibjörg og Ólafur Thors á kjörstað.
Horft frá Melaskóla yfir að Hóteli Sögu, Emil Jónsson, Ólafur Thors og Guðmundur Í. Guðmundsson.
Á leið í móttöku á Bessastöðum Ólafur og Ingibjörg Thors, aftan við þau Rósa og Guðmundur Í. Guðmundsson.
Ólafur í Valhöll á Þingvöllum.
Veisla til heiðurs sr. Friðriki Friðrikssyni sjötugum. Ingibjörg, Margrét og Ólafur Thors á spjalli við afmælisbarnið. Aftan við þau eru Þorsteinn M. Jónsson og Sigurður Ágústsson og frú.
Ólafur Thors með Sigrúnu Eiríksdóttur og Páli Ísólfssyni.
Kvöldverður á vegum Sjálfstæðiskvenna – við hlið Ólafs Thors er María Maack, en til hægri er Guðrún Jónassen kaupkona að tala við Auði Auðuns.
Bjarni Benediktsson heldur ávarp við afhjúpun styttu Sigurjóns Ólafssonar af Ólafi Thors.
Ingibjörg Thors og Bjarni Benediktsson við afhjúpun styttu af Ólafi Thors.
Ingibjörg Thors og Bjarni Benediktsson við afhjúpun styttu af Ólafi Thors.
Ingibjörg Thors og Bjarni Benediktsson við afhjúpun styttu af Ólafi Thors.
Við afhjúpun styttu af Ólafi Thors. Frá hægri: Jóhann Hafstein, Sigríður Björnsdóttir, Bjarni Benediktsson, Marta Thors, Thor Ó. Thors, Ingibjörg Thors, Stefanía Thors, Ólöf Pétursdóttir, Hjördís Gunnarsdóttir, Ólafur Tryggvason Thors og Margrét Þorsteinsdóttir.
Við afhjúpun styttu af Ólafi Thors.
Við afhjúpun styttu af Ólafi Thors.
Stytta Sigurjóns Ólafssonar af Ólafi Thors.
Stytta Sigurjóns Ólafssonar af Ólafi Thors.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958.  Ingibjörg Thors á tali við heimamann,  yst til vinsti er Bjarni Guðmundsson blaðafulltrúi ríkisstjórnarinnar.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958. Ólafur Thors og Kristinn Guðmundsson sendiherra Íslands í Þýskalandi.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958. Ólafur Thors og Kristinn Guðmundsson sendiherra Íslands í Þýskalandi.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958. Ingibjörg Thors á leið að skoða vínkjallara.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958. Ólafur og Ingibjörg Thors skoða vínkjallara.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958. Ólafur Thors með gestgjöfum.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958. Kristján Albertsson, Ólafur og Ingibjörg Thors.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958. Ólafur Thors á tali við heimamann, Kristinn Guðmundsson fylgist með.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958. Ólafur Thors og heimamaður skála.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958. Við inngang virkjunar.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958. Ólafur Thors og Kristinn Guðmundsson við bílinn.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958. Ólafur og Ingibjörg ásamt fleirum í skoðunarferð.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958. Ólafur og Ingibjörg Thors á útsýnisstað.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958. Ólafur og Ingibjörg ásamt fleirum í skoðunarferð í virkjun.
Ólafur Thors í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958.  Hlýtt á kvennakór.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958.  Duglegur kórstjóri hvetur sínar konur.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958. Kórstjóra þakkað.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958.  Hlýtt á útskýringar gestgjafans. Frá vinstri er Kristinn Guðmundsson sendiherra, bak við hann Birgir Thorlacius ráðuneytisstjóri, Kristján Albertsson, Ólafur og Ingibjörg Thors.
Í opinberri heimsókn til Þýskalands 1958. Ólafur Thors lærir um þýska framleiðsluhætti.
Nýsköpunarstjórnin. Frá vinstri:  Emil Jónsson, Brynjólfur Bjarnason, Ólafur Thors, Pétur Magnússon Finnur Jónsson og Áki Jakobsson.
Nýsköpunarstjórnin. Frá vinstri: Emil Jónsson, Brynjólfur Bjarnason, Ólafur Thors, Pétur Magnússon Finnur Jónsson og Áki Jakobsson.
Nýsköpunarstjórnin. Frá vinstri: Brynjólfur Bjarnason, Emil Jónsson, Pétur Magnússon, Ólafur Thors, Finnur Jónsson og Áki Jakobsson.
Viðreisnarstjórnin 1959. Frá vinstri: Ingólfur Jónsson, Bjarni Benediktsson, Ólafur Thors (Birgir Thorlacius ríkisráðsritari  og Ásgeir Ásgeirsson forseti) Emil Jónsson, Gylfi Þ. Gíslason, Gunnar Thoroddsen.
Viðreisnarstjórnin 1959. Frá vinstri: Ingólfur Jónsson, Bjarni Benediktsson, Ólafur Thors (Birgir Thorlacius ríkisráðsritari  og Ásgeir Ásgeirsson forseti) Emil Jónsson, Gylfi Þ. Gíslason, Gunnar Thoroddsen.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins. Aftari röð frá vinstri: Jónas Rafnar, Sigurður Óli Ólafsson, Jóhann Hafstein, Jón Kjartansson, Kjartan J. Jóhannsson, Einar Ingimundarson, Gunnar Thoroddsen, Björn Ólafsson, Lárus Jóhannesson, Sigurður Bjarnason frá Vigur, Ingólfur Flygenring, Magnús Jónsson frá Mel. Fremri röð frá vinstri: Ingólfur Jónsson frá Hellu, Sigurður Ágústsson, Gísli Jónsson, Bjarni Benediktsson, Ólafur Thors, Pétur Ottesen, Jóhann Þ. Jósepsson, Jón Pálmason frá Akri, Jóns Sigurðsson á Reynistað.
Fyrsti listi Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi 1959. Aftari röð frá vinstri: Axel Jónsson, Karvel Ögmundsarson, Stefán Jónsson, Einar Halldórsson á Setbergi, Guðmundur Guðmundsson Fremri röð frá vinstri: Sveinn Einarsson, Matthías A. Mathiesen, Ólafur Thors, Alfreð Gíslason, sr. Bjarni Sigurðsson á Mosfelli.
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Gullbringu- og Kjósarsýslu Aftasta röð frá vinstri: Axel Jónsson, Árni Grétar Finnsson, sr. Bjarni Sigurðsson á Mosfelli, Alfreð Gíslason, Sveinn Einarsson, óþekktur, Sigurjón Pétursson, óþekktur. Miðröð frá vinstri: Ólafur, óþekktur frá Álftanesi, Magnús Jónasson frá Stardal, óþekktur útgerðarmaður úr Vogum, Einar Halldórsson á Setbergi, Matthías Á. Mathiesen, Jón Guðmundsson á Reykjum, Ólafur tengdasonur Karvels Ögmundarsonar, tveir óþekktir. Fremsta röð frá vinstri: Stefán Jónsson, Karvel Ögmundarson, Guðmundur Guðmundsson, Ólafur Thors, Björn Finnbogason kaupmaður í Garði, Oddur Andrésson á Hálsi, og óþekktur yst til hægri.
Ólafur Thors ásamt nefndarmönnum í íslensk-norsku Kjötsölunefndinni.
Ólafur Thors ásamt nefndarmönnum í íslensk-norsku Kjötsölunefndinni.
Bræðurnir Ólafur og Thor Thors í  New York 1947.

Valmynd

  • Ræður og greinar
  • Myndir
  • Hljóðskrár
  • Myndband
  • Ólafs Thors minnst
  • Tenglar
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
  • Tryggvagata 15 - 3.h.
  • 101 Reykjavík
  • s. 411 6060
  • borgarskjalasafn@reykjavik.is