Kristín Ómarsdóttir

Nánari upplýsingar
Nafn Kristín Ómarsdóttir
Númer E-572
Lýsing

ATH: SAFNIÐ ER LOKAÐ TIL ÁRSINS 2024.

Kristín Ómarsdóttir er fædd í Reykjavík, 24. september 1962. Foreldrar hennar voru þau Hrafnhildur Oddný Kristbjörnsdóttir (1938-2014) og Ómar Árnason (1936-2011). Systkini hennar eru þau: Guðrún Yrsa (1964-) og Árni Björn (1965-).

Kristín lauk stúdentsprófi frá Flensborg í Hafnarfirði 1981 og nam íslensku, almenna bókmenntafræði og spænsku við Háskóla Íslands. Hún var í Kaupmannahöfn og Barcelona á Spáni þar sem hún var við nám í tæp tvö ár.

Kristín gaf út sína fyrstu bók, Draumar á hvolfi, árið 1987. Síðan hefur hún sent frá sér á þriðja tug bóka: Skáldsögur, smásögur, leikrit og ljóð og einnig hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir skrif sín.

Verðlaun:

Samkeppni Þjóðleikhússins í tilefni loka kvennaáratugarins: Draumar á hvolfi, 1. verðlaun, 1985. Rithöfundasjóður Ríkisútvarpsins, 1998. Menningarverðlaun DV í bókmenntum: Elskan mín ég dey, 1997. Gríman; Leikskáld ársins: Segðu mér allt, 2005. Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna: Sjáðu fegurð þína, 2000.

Tilnefningar:

Íslensku bókmenntaverðlaunin: Dyrnar þröngu, 1995. Íslensku bókmenntaverðlaunin: Elskan mín ég dey 1997. Norrænu leikskáldaverðlaunin: Ástarsaga 3, 1998. Menningarverðlaun DV í bókmenntum: Lokaðu augunum og hugsaðu um mig, 1999. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs: Elskan mín ég dey, 2000. Norrænu útvarpsleikritaverðlaunin: Margrét mikla, 2001. Útvarpsverðlaun Grímunnar: Smásögur, 2008. Menningarverðlaun DV í bókmenntum: Sjáðu fegurð þína, 2008. Útvarpsverðlaun Grímunnar: Í speglinum sefur kónguló, 2011. Íslensku bókmenntaverðlaunin: Milla, 2012.

Kristín hefur jafnframt skáldskap unnið að myndlist og sýnt verk sín. Bækur hennar hafa verið þýddar á sænsku, frönsku og finnsku og ljóð hennar hafa birst í erlendum safnritum.

Afhending: Kristín Ómarsdóttir afhenti Borgarskjalasafni Reykjavíkur skjalasafn sitt 26. ágúst 2015.

Innihald: Bréf, handrit, glósubækur, teikningar, ljósmyndir o.fl.

Tími: 1928-2014.

Kristín Ómarsdóttir óskar eftir því að skjalasafnið sé lokað til ársins 2024.

Skjalaskrá
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn E-572 Kristín Ómarsdóttir (1962)
Flokkun
Flokkur Einstaklingar
Útgáfuár 2015
Útgefandi Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Leitarorð kona, rithöfundur, bréf, ættfræði, handrit, teikningar, ljóð, ljósmyndir.