Örnólfur M. Guðmundsson og Stefanía Ósk Guðmundsdóttir

Nánari upplýsingar
Nafn Örnólfur M. Guðmundsson og Stefanía Ósk Guðmundsdóttir
Númer E-442
Lýsing

Örnólfur M. Örnólfsson var fæddur að Suðureyri við Súgandafjörð 23. mars 1917, dáinn 2. maí 1987. Foreldrar hans voru Margrét Þórlaug Guðnadóttir fædd 11.nóvember 1883 fædd í Tungu í Skutulsfirði, dáin 31. janúar 1960 og Örnólfur Jóhannesson fæddur 22. ágúst 1879 dáinn 11. Júlí 1955. Örnólfur byrjaði skólanám haustið sem hann var 8 ára hjá Hallbirni Oddssyni húsmanni á Suðureyri og var hjá honum til áramóta, þá fór hann í Barnaskóla Suðureyrar. Fullnaðarpróf úr Barnaskólanum tók Örnólfur 15. apríl 1931. Réði sig um haustið á m/b Súganda. Nær jólum 1932 ræður hann sig á m/b Njál til Jóhanns Halldórssonar og fór haustið eftir á m/b Draupni og var þar fram á vor. Í ágústmánuði það ár fer Örnólfur til Reykjavíkur og ræður sig sem sendil hjá Eiríki Hjartarsyni rafmagnsfræðingi og gerir ári seinna við hann námssamning. Eftir skrifum Örnólfs að dæma var hann 18 ára þegar hann fer á námssamning í rafvirkjun. Örnólfur klárar Iðnskólann í Reykjavík 1940 og verður rafvirkjameistari 1943.

Eiginkona Örnólfs var Stefanía Ósk Guðmundsdóttir fædd 27. maí 1915 á Ísafirði dáin 27. ágúst 2010. Foreldrar Stefaníu voru Guðmundur Kristjánsson fæddur 19. október 1876 að Hvammi í Dýrafirði, dáinn 24. maí 1962 og Ingileif Stefánsdóttir fædd 5. Júlí 1887 að Haughúsum á Álftanesi, dáin 3. september 1964.

Örnólfur og Stefanía gengu í hjónaband 29. maí 1940 og byrjuðu sinn búskap í Reykjavík. Þau flytja til Húsavíkur 1945 og var Örnólfur þar rafveitustjóri til ársins 1953 að þau flytja aftur til Reykjavíkur. Örnólfur rekur eigið fyrirtæki ásamt bróður sínum Árna í nokkur ár en ræður sig síðan til Rafmagnsveitu ríkisins og vann þar til dauðadags. Börn þeirra eru: Ingileif fædd 1940, Margrét 1942, Örnólfur 1945, Sóley 1946, Eva 1948, Ólöf 1950 og Aðalsteinn 1953.

Eva Örnólfsdóttir afhenti skjöl foreldra sinna.

Einkaskjalasafn nr. 442 er Í öskju ásamt einkaskjalasöfnum nr. 434 og nr. 441.

Skjalaskrá
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn E-442 Örnólfur M. Örnólfsson (1917 - 1987) og Stefanía Ósk Guðmundsdóttir (1915 - 2010)
Flokkun
Flokkur Einstaklingar
Útgáfuár 2010 og 2012
Útgefandi Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Leitarorð karl, kona, hjón, námsgögn, tækifæriskort, skírteini, vottorð, verslun, rafvirkjun, ættartala.