Lýsing |
Ríkhard Páll Ragnarsson, fæddist í Reykjavík 20. febrúar 1915. Hann lést í Reykjavík 11. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ragnar Pálsson Levi, kaupmaður þar, og kona hans, Margrét Stefánsdóttir Levi (síðar Sigurðsson). Páll varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1934. Hann lauk skipstjóraprófi frá Svendborg Navigationsskole 1940, sjóðliðsforingjaprófi frá Søofficerskolen í Kaupmannahöfn 1942 og sjómælingaprófi frá Kongelige dansk Søkortarkiv 1945. Páll var í siglingum og við nám 1934-1945, starfaði að sjómælingum og var í siglingum 1945-1960. Hann var skrifstofustjóri hjá Skipaskoðun ríkisins í Reykjavík frá 1960. Hinn 3. október 1942 kvæntist Páll Dagnýju Johanne Hanne Vestgard, f. 12. desember 1913. Hanne var kjördóttir August Andersen málarameistara í Randers í Danmörku. Bjó ásamt konu sinni Hanne í Rauða húsinu við Fossvog, en húsið var keypt af Reykjavíkurborg og rifið um áramótin 2008/2009.
Hjördís Magnúsdóttir skilaði skjölum í Borgarskjalasafn í maí 2011. |