Nánari upplýsingar | |
---|---|
Nafn | Reynir Björnsson |
Númer | E-296 |
Lýsing | Reynir Björnsson fæddist 17. júlí 1933 og lést 10. janúar 1996. Hann var sonur hjónanna Björns G. Björnssonar, forstjóra Sænsk-íslenska frystihússins, og Ragnhildar Björnssonar. Reynir var ógiftur og barnslaus. Reynir bjó á Hávallagötu 38 allt sitt líf. Ekki er vitað hvernig og hvenær þessi skjöl bárust Borgarskjalasafni Reykjavíkur en þau voru í pappakassa ásamt skjölum frá Sænsk-íslenska frystihúsinu (sjá einkaskjalasafn nr. 295) en Björn G. Björnsson, faðir Reynis, var forstjóri þess 1938-1962. Skjalasafnið inniheldur að mestu gögn frá æskuárum Reynis Björnssonar m.a. að úrklippibækur og litabók. Einnig er í skjalasafninu eitt bréf til föðurs Reynis, Björns G. Björnssonar. Skjalasafninu fylgdi enn fremur mikið magn af útgefnu efni, t.d. Lesbók Morgunblaðsins, Spegillinn, Vikan, Samvinnan og nokkur erlend blöð frá árunum 1946-1951. Þessu efni var eytt. |
Skjalaskrá |
Höfundar | |
---|---|
Nafn | E-296 Reynir Björnsson (1933 - 1996) |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Einstaklingar |
Útgáfuár | 2005 |
Útgefandi | Borgarskjalasafn Reykjavíkur |
Leitarorð | karl, teikningar, Landakotsskóli, flugvélar. |