Nánari upplýsingar | |
---|---|
Nafn | Sigríður Björnsdóttir |
Númer | E-488 |
Lýsing | Sigríður Björnsdóttir fæddist í Reykjavík 5 júlí 1922, dáin 11. ágúst 2012. Hún giftist, 24. janúar 1952 Jóni Guðmundssyni frá Gerðum, fæddur 24. janúar 1911, dáinn 11. september 1981. Börn Sigríðar og Jóns voru Þórunn (1947), Björn (1953) og Ingibjörg (1956). Foreldrar Sigríðar voru þau Þórunn Halldórsdóttir fædd 12. maí 1889 á Kotmúla í Fljótshlíð, dáin 30. maí 1967 og Björn Benediktsson fæddur að Akurhúsum í Garði 29. apríl 1890, dáinn 18. mars 1957. Þau giftust 1. nóvember 1913, bjuggu fyrst á Akureyri, en 1918 fluttu þau til Reykjavíkur. Foreldrar Jóns voru þau Ingibjörg Jónsdóttir og Guðmundur Þórðarson útgerðarmaður og kaupmaður. Þau ráku frystihús í Garði og fylgir stimpill o.fl., frá þessu fyrirtæki með í safninu. Afhending: Ingibjörg Jónsdóttir afhenti skjalasafnið 24. október 2012. Tímabil: 1894-2010. Innihald: Skjöl Sigríðar Björnsdóttur og Jóns Guðmundssonar, Björns Benediktssonar og Þórunnar Halldórsdóttur, Benedikts Þorlákssonar o.fl. |
Skjalaskrá |
Höfundar | |
---|---|
Nafn | E-488 Sigríður Björnsdóttir (1922 - 2012) |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Einstaklingar |
Útgáfuár | 2013 |
Útgefandi | Borgarskjalasafn Reykjavíkur |
Leitarorð | kona, vottorð, skírteini, vottorð, Skólavörðustígur 17a, matreiðsla, tímarit, minning, |