Tryggvi Jónsson

Nánari upplýsingar
Nafn Tryggvi Jónsson
Númer E-214
Lýsing

Tryggvi Jónsson fæddist 1. október 1900 á Búrfelli, Efri-Torfustaðahreppi, Vestur-Húnavatnssýslu, og lést 11. nóvember 1951. Kona hans var Þórunn Jónína Þorvaldsdóttir Kröyer frá Seyðisfirði fædd 19. nóvember 1901, dáin 16. júlí 1960.

Börn Tryggva og Þórunnar:

Heiða Tryggvadóttir fædd 17. maí 1927

Þorvaldur Tryggvason fæddur 16. apríl 1929 - dáinn 27. janúar 2022.

Jón Tryggvason fæddur 1. júní 1931 – dáinn 10. febrúar 2012

Guðný Soffía Tryggvadóttir fædd 21. september 1933 – dáin 20. maí 2006

Helga Tryggvadóttir fædd 25. september 1936.

Tryggvi var heyrnarlaus og var nemandi Margrétar Rasmus í Heyrnleysingjaskólanum. Hann lærði söðlasmíði og síðar húsgagnabólstrun.

Þorvaldur Tryggvason, sonur Tryggva Jónssonar, færði Borgarskjalasafni skjölin að gjöf 19. september 2001.

Skjalaskrá
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn E-214 Tryggvi Jónsson (1900 - 1951)
Flokkun
Flokkur Einstaklingar
Útgáfuár 2001
Útgefandi Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Leitarorð karl, döff, söðlasmíði, húsgagnabólstrun, iðngrein, Heyrnarleysingjaskólinn, trúmál, námsgögn, dagbækur, Daufdumbraskólinn í Reykjavík, Barónstígur 22.