Valgeir Björnsson

Nánari upplýsingar
Nafn Valgeir Björnsson
Númer E-445
Lýsing

Valgeir Björnsson fæddist þann 9. september 1894 á prestssetrinu Dvergasteini við Seyðisfjörð. Foreldrar hans voru séra Björn Þorláksson (f. 1851 – d. 1935) og Björg Einarsdóttir (f. 1873 – d. 1949).

Valgeir útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1913. Árið 1921 útskrifaðist hann sem byggingarverkfræðingur frá Danmarks Tekniske Universitet. Eftir nám starfaði hann hjá Jóni Þorlákssyni og síðar hjá vegamálastjóra. Valgeir starfaði sem bæjarverkfræðingur og lóðaskráarritari hjá Reykjavíkurborg í um tvo áratugi eða frá 1924–

  1. Næstu rúma tvo áratugi gegndi hann starfi hafnarstjóra eða allt til ársins 1965. Valgeir sat einnig í stjórn Nóa, Síríusar, Hreins og Ræsis hf.

Árið 1923 kvæntist Valgeir Evu Björnsson áður Borgen (f. 1898 – d. 1984). Börn þeirra; Dagný kennari (f. 1924 – d. 2010), Björg bankastarfsmaður og leiðsögumaður (f. 1925 – d. 2016), Hallvarður viðskiptafræðingur (f. 1926 – d. 1991) og Björn Thomas arkitekt (f. 1933 – d. 2011).
Valgeir lést þann 16. júní 1983.

Afhending: Afhent Borgarskjalasafni 19. janúar 2011 af Rannveigu Hallvarðsdóttur, en Valgeir var föðurafi hennar. Viðbót við safn kom 9. ágúst 2017.

Innihald: Bréf, einkunnir, vinnubækur, minnisblöð, skýrslur, greinargerðir, prentað mál, ljósmyndir, teikningar o.fl.

Tímabil: 1908-1995

Magn: 16 öskjur og teikningamöppur.
Annað: Skjöl Dagnýjar og Bjargar dætra Valgeirs er einnig að finna í safninu. Sjá ennfremur í safni E-444 Dagný Valgeirsdóttir og Eva Björnsson. Sjá einnig E-503 Stefanía Stefánsdóttir og Björn Thomas Valgeirsson.

Skjalaskrá
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn E-445 Valgeir Björnsson (1894 - 1983)
Flokkun
Flokkur Einstaklingar
Útgáfuár 2011, 2012 2018
Útgefandi Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Leitarorð karl, verkfræði, bæjarverkfræðingur, hafnarstjóri, tækni, nýsköpun, bréf, teikningar, ættartal, skipulag, ljósmyndir, hús, byggingar, vegagerð, tækifæriskort, Menntaskólinn í Reykjavík, Dagný Valgeirsdóttir, Björg Valgeirsdóttir, námsgögn,