Barnavinafélagið Sumargjöf
Nánari upplýsingar |
Nafn |
Barnavinafélagið Sumargjöf |
Númer |
E-34 |
Lýsing |
Barnavinafélagið Sumargjöf var stofnað 11. apríl 1924.
Í 2. grein laga félagsins sagði „Tilgangur félagsins er að stuðla að andlegu og líkamlegu heilbrigði og þroska barna í Reykjavík og vernda þau fyrir óhollum áhrifum“. Sumarið 1924 stofnaði Sumargjöf dagheimili og rak það fyrst um sinn í Kennaraskólanum við Laufásveg. Félagið lenti í vandræðum með að fá húsnæði leigt og því var efnt til fjársöfnunar til að reisa Grænuborg á túninu við Landspítalann sumarið 1931.
Í Grænuborg var rekið sumardvalarheimili en húsið leigt á veturna Kennaraskólanum og skóla Ísaks Jónssonar. Ísak Jónsson var í stjórn Sumargjafar í 26 ár og formaður í 15 ár. Í kjölfarið af byggingu Grænuborgar stóð Sumargjöf að byggingu og rekstri fjölmargra dagheimila allt til ársins 1978 þegar Reykjavíkurborg tók við rekstrinum. Árið 1946 stofnaði Sumargjöf skóla sem hlaut nafnið Uppeldisskóli Sumargjafar en hét síðar Fóstruskóli Sumargjafar. Árið 1973 var skólinn gerður að ríkisskóla og hét Fósturskóli Íslands. Frú Valborg Sigurðardóttir var ráðin skólastjóri við skólann við stofnun hans, en hún hafði þá verið við nám í Bandaríkjunum og lauk þar Master of Arts-prófi í uppeldis og sálarfræði. Frú Valborg var skólastjóri til ársins 1985. Fósturskólinn sameinaðist Kennaraháskóla Ísland sem síðar sameinaðist Háskóla Íslands. Sumargjöf beitti sér fyrir að haldinn væri sérstakur barnadagur. Barnadagurinn var haldinn á Sumardaginn fyrsta allt frá 1921 fram til 1978. Á fyrstu árunum var flutt ávarp á svölum Alþingishússins. Gengnar voru skrúðgöngur niður í Lækjargötu og þar höfð vegleg útiskemmtun. Merkjasala Sumargjafar fór einnig fram á þessum degi og var lengi aðaltekjulind félagsins. Barnavinafélagið Sumargjöf úthlutar árlega styrkjum til ýmissa verkefna er tengjast börnum |
Skjalaskrá |
|
Höfundar |
Nafn |
E-34 Barnavinafélagið Sumargjöf (1924) |
Flokkun |
Flokkur |
Félagasamtök |
Útgáfuár |
1990, 1993, 2001, 1997, 2015. |
Útgefandi |
Borgarskjalasafn Reykjavíkur |
Leitarorð |
leikskólar, fræðslumál, börn |