Nánari upplýsingar | |
---|---|
Nafn | Kiwanisklúbburinn Elliði |
Númer | E-613 |
Lýsing | Kiwanishreyfingin var stofnuð í Detroit í Michiganfylki í Bandaríkjunum þann 21.janúar 1915. Þann 1.nóvember 1916 var fyrsti klúbburinn stofnaður í Kanada í Hamilton í Ontarioríki. Sama ár var heitið "Kiwanisklúbbur" tekið upp á fundi í Cleveland í Ohio (USA). Átta árum síðar var heitinu breytt í "Kiwanis International" (Alþjóðahreyfing Kiwanisfélaga) og þá var stofnskrá sú og lög staðfest, sem gilda enn í dag, svo og meginmarkmiðin sex. Kiwanishreyfingin óx jafnt og þétt, bæði í Bandaríkjunum og Kanada, í nær hálfa öld áður en ákveðið var að breiða hana út til annarra heimsálfa og þjóða, en það var árið 1961. Árið 1964 var fyrsti Kiwanisklúbburinn stofnaður í Reykjavík, en það var Kiwanisklúbburinn Hekla. Tveimur árum síðar var annar klúbbur stofnaður, en það var Kiwanisklúbburinn Katla í Reykjavík. Þar með má segja að Kiwanishreyfingin hafi náð fótfestu á Íslandi og voru fjölmargir klúbbar stofnaðir í kjölfarið. Kiwanis er alþjóðleg þjónustuhreyfing manna og kvenna, sem hafa áhuga á að taka virkan þátt í að bæta samfélagið, og láta gott af sér leiða. Í samstarfi fá þessir aðilar áorkað því sem einstaklingar geta ekki einir. Frjálst samstarf gerir þeim kleift að vinna að alþjóðlegum verkefnum innan hinnar alþjóðlegu hreyfingar. Þeir vinna einnig að umbótum á landsvísu. Ekki síst vinna þeir að mannúðar og framfaramálum sem horfa til heilla fyrir bæjarfélag þeirra, sem opinberir aðilar annað hvort vilja ekki eða geta ekki sinnt. Þannig verða þeir leiðandi aðilar í sínu byggðarlagi. Hin sex megin markmið Kiwanishreyfingarinnar: Að láta andleg og mannleg verðmæti skipa æðri sess, en verðmæti af veraldlegum toga spunnin. Stuðla ber að því að dagleg breytni manna á meðal byggist á hinni gullvægu reglu: Að beita sér fyrir bættum viðskiptaháttum, starfsháttum og félagslegri hegðun. Að efla borgaralegar dyggðir með góðu fordæmi. Að skapa, með stofnun Kiwanisklúbba, leiðir til þess að menn geti bundist varanlegum vináttuböndum og ósérhlífnir innt af höndum þjónustustörf og stuðlað að betra samfélagi. Að vinna saman að mótun og eflingu heilbrigðs almenningsálits og göfugrar hugsjónastefnu, sem er undirstaða aukinnar ráðvendni, bættrar stundvísi, vaxandi þjóðrækni og bræðralags. Fjöldi Kiwanisklúbba í umdæminu Ísland-Færeyjar hefur mest orðið 49. Í dag eru starfandi 42 Kiwanisklúbbar í umdæminu með rúmlega ellefu hundruð félögum. Lengi vel var Kiwanishreyfingin eingöngu skipuð körlum. En á árinu 1987 var samþykkt á heimsþingi Kiwanis, að leyfilegt væri að taka konur inn í hreyfinguna. Stuttu síðar hófst innganga kvenna í íslensku Kiwanishreyfinguna. Fyrsti Kiwanisklúbburinn sem eingöngu var skipaður konum var stofnaður 1989, en það er Kiwanisklúbburinn Harpa Kiwnisklúbburinn Elliði var stofnaður 23. október 1972. |
Skjalaskrá |
Höfundar | |
---|---|
Nafn | E-613 Kiwanisklúbburinn Elliði (1972) |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Félagasamtök |
Útgáfuár | 2017 |
Útgefandi | Borgarskjalasafn Reykjavíkur |
Leitarorð | kiwanis, alþjóðleg félagasamtök |