Listvinafélag Hallgrímskirkju

Nánari upplýsingar
Nafn Listvinafélag Hallgrímskirkju
Númer E-300
Lýsing

Listvinafélag Hallgrímskirkju var stofnað 1982. Markmið þess er að efla listalíf við Hallgrímskirkju í Reykjavík. Allir geta orðið félagar í Listvinafélaginu án tillits til búsetu og geta nýir félagar skráð sig í kirkjunni eða á vefnum.

Listvinafélag Hallgrímskirkju starfar að margvíslegum málum á listasviði, stendur fyrir tónleikum, myndlistarsýningum og öðrum menningarviðburðum. Annað hvert ár er haldin Kirkjulistahátíð í kirkjunni.

Listasafn Hallgrímskirkju hefur starfað frá 1996 og hefur umsjón með listaverkaeign kirkjunnar ásamt því að standa fyrir myndlistarsýningum í kirkjunni í samstarfi við Listvinafélagið.

Skjalaskrá
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn E-300 Listvinafélag Hallgrímskirkju (1982)
Flokkun
Flokkur Félagasamtök
Útgáfuár 2013
Útgefandi Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Leitarorð kirkjustarf, listir, menning, hátíð