Málarameistarafélag Reykjavíkur
Nánari upplýsingar |
Nafn |
Málarameistarafélag Reykjavíkur |
Númer |
E-532 |
Lýsing |
Stofnfundur Málarameistarafélags Reykjavíkur var haldinn þann 26. febrúar 1928 í baðstofu iðnaðarmanna við Vonarstræti. Stofnfélagar voru 16 að tölu. Tilgangur félagsins var m.a. að efla samvinnu meðal málarameistara og stuðla að menningu og menntun stéttarinnar, gæta í hvívetna hagsmuna félagsmanna og vera málsvari félagsmanna gagnvart almenningi og hinu opinbera. Þessi atriði eru í fullu gildi enn þann dag í dag og má því segja að frumherjarnir hafi skynjað þann tilgang sem svona félag þyrfti að hafa. Í dag njótum við góðs af störfum þessara félaga okkar og erum þeim þakklátir fyrir. Fyrstu stjórn félagsins skipuðu þeir Einar Gíslason formaður, Ágúst Lárusson ritari og Helgi Guðmundsson gjaldkeri. Undanfari stofnunarinnar voru bein og óbein áhrif er lögin um iðju og iðnað, svo og lögin um iðnnám voru samþykkt árið 1927, að iðnaðarmenn skipa sér í sérfélög meistara og sveina. Einar, fyrsti formaður félagsins og jafnframt aðalhvatamaður að stofnun þess, gegndi formennsku samtals í 21 ár. Félagið átti aðild að Landssambandi Iðnaðarmanna og Meistara og Verktakasambandi byggingarmanna þar til þau voru lögð niður árið 1993 og í framhaldi voru stofnuð ný heildarsamtök - Samtök iðnaðarins sem er málsvari alls iðnaðar í landinu og gerðist Málarameistarafélag Reykjavíkur aðili að þeim samtökum strax við stofnun þeirra og á sama tíma, þá eftir nokkurt hlé gerðist félagið aðili að VSÍ sem í dag heitir Samtök atvinnulífsins. Málarameistarafélagið gerðist einnig aðili að sambandi norrænna málarameistara, NMO árið 1949 og eru þing þess haldin annað hvert ár og skiptast Norðurlöndin á að halda þessi þing. Árið 1929 var ákveðið að halda verklegt námskeið fyrir nemendur og menn sem höfðu unnið í iðninni fyrir gildistöku laganna um iðju og iðnað. Námskeið þetta mun hafa verið fyrsta sinnar tegundar hér á landi og luku 6 menn sveinsprófi á þessu námskeiði. Félagið hefur allar götur síðan unnið að verkmenntun stéttarinnar. Það var svo árið 1953 að félagið kemur því til leiðar að stofnuð er málaradeild innan vébanda Iðnskólans í Reykjavík.
Breyting varð á nafni Málarameistarafélag Reykjavíkur árið 2003 sem varð að landsfélagi og heitir nú Málarameistarafélagið. |
Skjalaskrá |
|
Höfundar |
Nafn |
E-532 Málarameistarafélag Reykjavíkur (1928) |
Flokkun |
Flokkur |
Félagasamtök |
Útgáfuár |
2014 |
Útgefandi |
Borgarskjalasafn Reykjavíkur |
Leitarorð |
iðnaðarmenn, fagfélag, málarmeistarar |