Múrarameistarafélag Reykjavíkur

Nánari upplýsingar
Nafn Múrarameistarafélag Reykjavíkur
Númer E-525
Lýsing

Múrarameistarafélag Reykjavíkur var stofnað 18. mars 1933. Undirbúningsfundur að stofnun. Múrarameistarafélags Reykjavíkur var haldinn 9. febrúar 1933 og sóttu hann 22 þeirra 28 múrarameistara, sem þá störfuðu í Reykjavík. Skoðanir voru nokkuð skiptar um félagsstofnunina, en ákveðinn kjarni var ákveðinn. Boðað var til stofnfundar 18. mars 1933. Þar voru félagslög samþykkt og kosin fyrsta stjórn Múrarameistarafélagsins. Sérstök laganefnd hafði setið að stórfum fyrir fundinn. Stofnendur voru 16. Kristinn Sigurðsson var kosinn fyrsti formaður Múrarameistarafélagsins, en aðrir í stjórn voru þeir Jón Bergsteinsson gjaldkeri og Kjartan Ólafsson ritari.

Eitt fyrsta verk nýkjörinnar stjórnar var að staðfesta samning við sveina um verkaskiptingu. Samningur þessi kvað á um skyldur beggja málsaðila. Sveinar skuldbundu sig til að vinna undir stjórn meistara og að bjóða ekki í byggingar og múrvinnu að undanskildum viðgerðum sem kostuðu 50 krónur eða lægri upphæð. Meistarar skuldbundu sig til að nota einvörðungu meðlimi sveinafélagsins til þeirra verka sem nefnd voru í verðskrá félagsins og einnig að vinna aðeins sem verkstjórar við múrverk. Samningurinn var undirritaður 22. apríl 1933 og tók þegar gildi. Hann tryggði báðum félögum og meðlimum þeirra starfsgrundvöll.

Múrarameistarafélag Reykjavíkur varð 50 ára 1983 og gaf út sögu sína af því tilefni.

Skjalaskrá
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn E-525 Múrarameistarafélag Reykjavíkur (1933)
Flokkun
Flokkur Félagasamtök
Útgáfuár 2014
Útgefandi Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Leitarorð fagfélög, iðnaðarmenn, múrarar,