Samvinnufélagið Hreyfill

Nánari upplýsingar
Nafn Samvinnufélagið Hreyfill
Númer E-511
Lýsing

Samvinnufélagið Hreyfill var stofnað 11. nóvember 1943. Félagið stofnuðu 130 leigubílstjórar í Reykjavík og var tilgangurinn að reka bifreiðastöð, þar sem hver félagsmanna ætti sína eigin bifreið, þannig nyti hver einstaklingur arðsins af eigin vinnu í sem ríkustum mæli. Hugmyndina að stofnun félagsins áttu þeir Bergsteinn Guðjónsson, Ingjaldur Ísaksson og Þorgrímur Kristinsson. Fyrstu stjórn Hreyfils skipuðu þessir þrír félagar og var Bergsteinn formaður. Auk þeirra sátu í stjórn Tryggvi Kristjánsson og Ingvar Sigurðsson. Árið 1945 tók Ingjaldur við formennsku og gegndi henni nær óslitið til ársins 1970 eða lengur en nokkur annar í sögu félagsins.

Fyrstu árin var aðstaða Hreyfils við Kalkofnsveg, neðan Arnarhóls, en árið 1951 flutti félagið aðalaðsetur sitt á Hlemm. Hreyfilsmenn hófu húsbyggingarframkvæmdir undir starfsemi sína við Fellsmúla árið 1958 og þaðan er öll starfsemi félagsins rekin í dag. Þar eru nú til húsa bifreiðaafgreiðsla, skrifstofur, félagsheimili, bensínsala og bílaþvottastöð.

Margvísleg önnur starfsemi hefur ætíð verið á vegum Hreyfils. Pöntunarfélag Hreyfils var stofnað 1954 og menningarmál hafa Hreyfilsmenn ætíð látið til sín taka. Þeir gáfu út tímaritið Sleipni árið 1951 og Hreyfilsblaðið sem kom út á árunum 1963 til 1971.

Karlakór Hreyfils var stofnaður árið 1952 og Hreyfilskvartettinn starfaði á árunum milli 1960-1970. Árið 1949 var Knattspyrnufélag Hreyfils stofnað, en nafni þess var síðar breytt 1966 Íþróttafélag Hreyfils, Taflfélag Hreyfils var stofnað í febrúar 1954 og Bridsfélag Hreyfils árið 1967.

Skjalaskrá
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn E-511 Samvinnufélagið Hreyfill (1943)
Flokkun
Flokkur Félagasamtök
Útgáfuár 2013, 2016.
Útgefandi Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Leitarorð Leigubílstjórar, samvinnufélag, taflfélag, bridsfélag, knattspyrnufélag, íþróttafélag.