| Nánari upplýsingar | |
|---|---|
| Nafn | Soroptimistaklúbbur Bakka- og Seljahverfis, Reykjavík III |
| Númer | E-512 |
| Lýsing | Soroptimistaklúbbur Bakka- og Seljahverfis eru samtök kvenna í stjórnun og öðrum sérhæfðum störfum. Hann er hluti af Soroptimistasambandi Íslands. Klúbbar soroptimista á Íslandi eru 18 talsins og sá elsti var stofnaður 19. september 1959 og var þá Soroptimistaklúbbur Reykjavíkur. Soroptimistaklúbbur Bakka- og Seljahverfis var stofnaður árið 1980. Í byrjun ársins stefndi Halldóra Eggertsdóttir til sín þrem konum, þeim Maríu Sigurðardóttur, Vigdísi Einarsdóttur og Vigdísi Pálsdóttur. Þær héldu síðan tvo fundi í apríl og á þeim síðast nefnda, 25. apríl, er skipuð bráðabirgðastjórn þessara þriggja kvenna með Maríu sem formann. Fjórtán konur mætu síðan á formlegum fundi þann 24. september sama ár og lögðu frumdrög að vígslu hins nýja klúbbs undir handleiðslu Halldóru. Stofnunarhátíð var síðan haldin þann 18. október sama ár á Hótel Loftleiðum og afhendi Pirkko Auvinen, sendifulltrúi frá Finnlandi, stofnskrána. Klúbburinn var stofnaður með klúbb Reykjavík II. Átján félagar voru í klúbbnum. Markmið klúbbsins er að hvetja til aðgerða og skapa tækifæri til að breyta lífi kvenna og stúlkna með fjölþjóðlegu samstarfi og alþjóðlegu félaganeti. Soroptimistar hvetja til jafnræðis og jafnréttis; skapa öruggt heilsusamlegt umhverfi; auka aðgengi að menntun; efla leiðtogahæfni og hagnýta þekkingu til sjálfbærrar framtíðar. |
| Skjalaskrá | |
| Höfundar | |
|---|---|
| Nafn | E-512 Soroptimistaklúbbur Bakka- og Seljahverfis, Reykjavík III (1959) |
| Flokkun | |
|---|---|
| Flokkur | Félagasamtök |
| Útgáfuár | 2013 |
| Útgefandi | Borgarskjalasafn Reykjavíkur |
| Leitarorð | kvenfélag, Breiðholt, góðgerðamál |