Egill Jacobsen

Nánari upplýsingar
Nafn Egill Jacobsen
Númer E-88
Lýsing

Knud Egill Jacobsen (4. október 1880 - 21. október 1926) var danskur kaupmaður. Hann fluttist til Íslands 22 ára að aldri árið 1902 og gerðist afgreiðslumaður í vefnaðarvörudeild Brydeverslunar. Hann varð síðar deildarstjóri í verslun Th. Thorsteinsson en árið 1906 stofnaði hann vefnaðarvöruverslun í miðbæ Reykjavíkur, Verzlun Egill Jacobsen. Fyrri kona Egils var Sigríður Zoëga og eignuðust þau tvær dætur. Seinni kona hans var Soffía Helgadóttir og eignuðust þau tvo syni. 

Honum var margt til lista lagt og var atkvæðamikill við ýmis félags- og íþróttastörf hér á landi. Hann átti m.a. nokkurn þátt í stofnun Knattspyrnufélagsins Víkings, var um tíma formaður Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) og sinni dómarastörfum á knattspyrnuleikjum á Íslandi. 

Verslunin Egill Jacobsen var stofnuð 1906 og hætti rekstri áramótin 1997/1998.

Skjalaskrá
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn E-88 Egill Jacobsen (1906-1998)
Flokkun
Flokkur Fyrirtæki
Útgáfuár 1998
Útgefandi Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Leitarorð verslun, Austurstræti, Danir, vefnaðarvara, miðbær, knattspyrnufélagið Víkingur