Ársel frístundamiðstöð

Nánari upplýsingar
Nafn Ársel frístundamiðstöð
Lýsing

Ársel var stofnað 1981 og er eina félagsmiðstöðin í Reykjavík sem er hönnuð sem slík. Ársel er staðsett miðsvæðis í Árbænum í Rofabæ 30 og er í mikilli nálægð við náttúruna, enda stutt í Elliðaárdalinn og upp að Rauðavatni. Öll aðstaða í Árseli er hönnuð með frístundastarf í huga og er húsnæðið þar að auki aðgengilegt fyrir fatlaða. Starfsmannahópur Ársels býr yfir góðri reynslu af starfi með börnum og unglingum. Mikið er lagt upp úr þjálfun starfsmanna. Ársel hefur umsjón með félagsmiðstöðinni Árseli við Rofabæ, Holtinu í Norðlingholti og félagsmiðstöðinni Fókus við Ingunnarskóla. http://www.arsel.is Skjalaafhending 2007.

Frístundamiðstöðin Ársel – „Þar sem reynsla verður að þekkingu“.

Ársel er frístundamiðstöð Árbæjar, Grafarholts og Norðlingarholts. Ársel býður börnum og unglingum í þessum borgarhluta upp á fjölbreytt félags- og tómstundastarf þar sem áhersla er lögð á forvarnir og að beina þeim inn á braut heilbrigðs og jákvæðs lífernis. Uppbygging þjónustu í frítímanum er ein af kröfum nútímans. Þar á að vera vettvangur tómstunda, menntunar, menningar og uppeldis undir handleiðslu hæfra starfsmanna.

Frístundaheimilið Töfrasel er starfrækt fyrir börn í 1.-4. bekk. Það opnar eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur eða kl. 13:30 og er opið til kl. 17:00. Leitast er við að hafa starfið sem fjölbreyttast og skapa börnunum heimilislegt og öruggt umhverfi. Markmið okkar er í raun tvíþætt. Í fyrsta lagi að bjóða upp á skipulagða tómstundadagskrá þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og hver einstaklingur fær að njóta sín. Í öðru lagi að bjóða foreldrum upp á skemmtilegan og öruggan stað fyrir börn þeirra að leika sér á. Eins að foreldrar geti verið vissir um að eftirlit með börnunum sé skilvirkt og faglegt en þó á mannlegum nótum. Í frístundinni okkar leitast starfsfólk við að leiðbeina börnunum í leikjum og ýmiss konar verkefnum, þar sem áhersla er lögð á samvinnu, vinskap og skemmtun. Frístundaheimilið er starfrækt á tveimur stöðum, annars vegar er 1.-2. bekkur í Töfraseli í frístundamið-stöðinni Árseli við Rofabæ 30 og hins vegar er 3.-4. bekkur í Töfraheimum (Fylkishöll), Fylkisvegi 16. Frístundaheimilið Töfrasel hefur verið starfandi í Árseli frá 2004 og Töfraheimar í Fylkishöllinni frá 2016.

Frístundaheimilið Víðisel hefur umsjón með skipulögðu frístundarstarfi fyrir börn í 1.-4. bekk í Selásskóla. Víðisel er starfrækt eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur frá 13:30-17:00, Víðisel er staðsett í Selásskóla við Selásbraut.

Frístundaheimilið Stjörnuland hefur umsjón með skipulagðri tómstundadagskrá fyrir börn í 1.-4. bekk í Ingunnarskóla. Stjörnuland er starfrækt eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur frá 13:30-17:00, staðsett við Kirkjustétt 2-6.

Frístundaheimilið Fjósið við Sæmundarskóla hefur umsjón með skipulagðri frístundadagskrá fyrir börn í 1.-4. bekk við Sæmundarskóla. Dagskrá hefst við lok venjulegs skóladags kl. 13:40 og henni lýkur kl. 17:00.

Félagsmiðstöðin Tían er ein af þremur félagsmiðstöðvum í Árbæ, Grafarholti, Úlfars-

dal og Norðlingaholti sem starfrækt er af Árseli, frístundamiðstöð. Markhópurinn er börn og unglingar í 5.-10. Lögð er áhersla á samvinnu við skólana þrjá (Árbæjar- Ártúns- og Selásskóla) sem og foreldra/forráðamenn í hverfinu. Félagsmiðstöðin er opin öllum þeim sem hafa áhuga og er öllum að kostnaðarlausu nema annað sé auglýst. Félagsmiðstöðin Tían er staðsett í Árseli sem er við Árbæjartorg.

Félagsmiðstöðin Fókus er staðsett í Grafarholti og er með starfsemi fyrir alla krakka og unglinga í 5.-10. bekk í hverfinu. Fókus er partur af frístundamiðstöðinni Árseli og þjónustar þrjá skóla í hverfinu (Dalskóla, Ingunnarskóla og Sæmundarskóla).

Á haustmánuðum 2018 starfrækti Fókus skipulagt félagsstarf í aðstöðu frístundaheimilisins Fjóssins.

Félagsmiðstöðin Holtið er ein af þremur félagsmiðstöðvum sem starfræktar eru af

frístundamiðstöðinni Árseli. Holtið er staðsett í gamla Mest húsinu við Norðlingabraut 12. Markhópur Holtsins eru börn og unglingar í 5.-10. bekk búsett í Norðlingaholti.

Á árunum 2016-2018 starfrækti frístundamiðstöðin Ársel félagsstarf fyrir eldri borgara í þjónustukjarna í Hraunbæ 105. Starfið er samstarfsverkefni Þjónustumiðstöðvar Árbæjar, Grafarholts, Úlfarsársdals og Norðlingaholts og frístundamiðstöðvarinnar Ársel.

(Heimild: Árni Jónsson framkvæmdarstjóri, Árseli, 2018).

 

Afhending: Skjalaafhendingar 2007 og 2018.

Innihald: Fundargerðabækur, bréf, útboð og verklýsingar, skýrslur, umsagnir, dvalarsamningar, skráningar, starfsmannamál, dagbækur, vaktabækur, gestabækur, handbækur, starfsáætlanir, kannanir, ferðalög, útgáfa, ársskýrsla, launalistar, ljósmyndir, snældur o.fl.

Tími: 1976-2016.

Magn: 34 öskjur.

 

Skjalaskrá
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Ársel frístundamiðstöð
Flokkun
Flokkur Opinber skjöl
Útgáfuár 2007 og 2018
Útgefandi Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Leitarorð frístundamiðstöð, frístundaheimili, Töfrasel, Víðisel, Fjósið við Sæmundarskóla, Tían, Fókus, Holtið.