Breiðholtsskóli

Nánari upplýsingar
Nafn Breiðholtsskóli
Númer K2060
Lýsing

Breiðholtsskóli tók til starfa 1969. Skólinn er með nemendur í 1. til 10. bekk. Kjörorð skólans er „árangur fyrir alla“. Skólinn er skipulagður þannig að kennarar sérhæfa sig í ákveðnum fögum eða tveimur til þremur árgöngum. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám þar sem litið er á nemendur hvers árgangs sem eina heild. Námshópar eru því sveiganlegir eftir viðfangsefnum og aðstæðum. Auk almenns bóknáms, einkum lesturs er lögð áhersla á kraftmiklar íþróttir, list- og verkgreinar. Öflugur stuðningur er við nemendur með sérþarfir, bæði einstaklinga og hópa. Í skólanum eru fjögur námsver. Í skólanum er lagt upp með jákvæða hegðun og skýr viðmið og er unnið að innleiðingu á PBS hegðunarkerfinu. Mikil aðsókn hefur verið að Bakkaseli, tómstundarheimili ÍTR. Í Breiðholtsskóla er miðstöð Skólahljómsveitar Árbæjar- og Breiðholts og fara fram bæði hópæfingar og einstaklingskennsla auk þess sem skrifstofa hljómsveitaarstjóra er í skólanum.

(af heimasíðu Breiðholtsskóla).

Skjöl afhent Borgarskjalasafni 2007.

Tímabil 1969-2004.

Skjalaskrá
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Breiðholtsskóli
Flokkun
Flokkur Opinber skjöl
Útgáfuár 2007
Útgefandi Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Leitarorð menntamál, grunnskólar, nemendur, kennarar, Breiðholt.