Bústaðir félagsmiðstöð

Nánari upplýsingar
Nafn Bústaðir félagsmiðstöð
Númer E3100
Lýsing

Bústaðir er félagsmiðstöð á vegum ÍTR, Tunguvegi 25, starfrækt af Frístundamiðstöðinni Kringlumýri. Markhópurinn eru börn og unglingar í 6. - 10. bekk. Áhersla er lögð á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir unglinga í 8. - 10. bekk. Mikil áhersla er lögð á unglingalýðræði og að virkja gesti félagsmiðstöðvarinnar í að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd. Boðið er upp á opið starf og ýmiskonar klúbbar eru starfandi eftir áhugasviði og þörfum þeirra einstaklinga sem sækja staðinn. Þá eru haldnar ýmsar uppákomur og verkefni í samstafi við börn, foreldra, skóla og aðra samstarfsaðila í hverfinu. Að auki er mikil áhersla lögð á fræðslu um ýmis málefni tengdum lífsleikni og má þar nefna fræðslu gegn fordómum, forvarnir gegn

vímuefnum, stuðningur við jákvæða sjálfsmynd og margt fleira. Einu sinni í viku er boðið uppá opið hús fyrir börn í 6. og 7. bekk að loknum skóladegi. Þá er opið hús fyrir 5. bekk einu sinni í mánuði. Félagsmiðstöðin er þátttakandi í samstarfi í hverfinu og hefur m.a haldið utan um og komið að skipulagningu hverfishátíðar á sumardaginn fyrsta og einnig vegna hátíðahalda á öskudaginn. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf við foreldra/forráðamenn og alla þá aðila sem koma að uppeldismálum í hverfinu. Lögð er mikil áhersla á að félagsmiðstöðin sé sýnileg og opin þeim sem áhuga hafa á að kynna sér starfsemina.

Hverfisskólar tengdir Bústöðum eru Breiðagerðisskóli, Fossvogsskóli og Réttarholtsskóli. 

kringlumyri@itr.is

Skjalaafhending 2007

Skjalaskrá
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Bústaðir félagsmiðstöð
Flokkun
Flokkur Opinber skjöl
Útgáfuár 2007
Leitarorð Kringlumýri, frístundir, félagsmiðstöðvar, Breiðagerðisskóli, Fossavogsskóli, Réttarholtsskóli, Bústaðahverfi.