Garðyrkjudeild - skrifstofa garðyrkjustjóra

Nánari upplýsingar
Nafn Garðyrkjudeild - skrifstofa garðyrkjustjóra
Númer J2200
Lýsing

Garðyrkjdeild heyrði undir embætti borgarverkfræðings. Garðyrkjudeild annast viðhald allra skrúðgarð borgarinnar sem og trjágróðurs og blómabeða á opnum svæðum og stofnanalóðum. Skrifstofan sér um nýbyggingar leiksvæða og útivistarsvæða og annast gróðursetningar trjábeða á grænum svæðum. Garðyrkjudeild hefur umsjón með og annast ræktun og gerð náttúrustíga í útmörkinni, þ.e. á skógræktarsvæðum og stöðum þar sem náttúrulegt yfirbragð er látið halda sér í meginatriðum. Garðyrkjudeild sér um rekstur skólagarða og leigu garðlanda til matjurtaræktunar. Garðyrkjudeild rekur Grasagarð Reykjavíkur, þar sem gefur að líta stóran hluta íslensku flórunnar ásamt fjölbreyttu úrvali erlendra plantna.

Skrifstofa garðyrkjustjóra var lögð niður 1. janúar 2002 og lögð undir nýtt svið Umhverfis- og heilbrigðisstofu, sem síðar varð Umhverfissvið.

Afhending: Skjöl send Borgarskjalasafni 26. janúar1996, 15. janúar 1998 og 20. júli 2005 frá öskju nr. 70. Fyrir er málasafn í 8 öskjum.

Innihald: Bréfa- og málasafn, garðyrkja, Tjörnin, útivistarsvæði, höggmyndir, Grasagarður, ræktun o.fl.

Tími: 1918-2000

Magn: 101 askja

Skjalaskrá
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Borgarverkfræðingur
Flokkun
Flokkur Opinber skjöl
Útgáfuár 1996, 1998 og 2005.
Útgefandi Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Leitarorð skipulag og framkvæmdir, borgarverkfræðingur, garðyrkja.