Nánari upplýsingar | |
---|---|
Nafn | Háteigsskóli - Æfinga- og tilraunaskóli Kennaraháskóla Íslands |
Númer | K2170 |
Lýsing | Háteigsskóli við Háteigsveg er grunnskóli fyrir nemendur í fyrsta til tíunda bekk. Nemendur skólans koma aðalega úr skólahverfinu en hann er opinn fyrir alla nemendur í Reykjavík á skólaskyldualdri eins og aðrir grunnskólar. Síðastliðinn vetur voru 380 nemendur í skólanum, 39 kennarar og 29 aðrir starfsmenn eða samtals 68. Skólinn á rætur að rekja til ársins 1908 þegar kennaramenntun hófst í landinu, en þá var strax stofnað til æfingadeildar í tengslum við Kennaraskólann við Laufásveg. Árið 1969 varð skólinn hverfisskóli í Reykjavík, en jafnframt æfinga- og tilraunaskóli við Kennaraskólann. Skólinn hélt þessari sérstöðu til ársins 1998, en þá hafði grunnskólinn verið færður til sveitarfélaganna. Í skólanum eru 20 bekkjardeildir sem skiptast í þrjú stig. Þau eru yngsta stig 1. – 4. bekkir, miðstig, 5.-7. bekkir og unglingastig 8. – 10. bekkir. Samvinna er innan hvers stigs og haldnir reglulegir fundir um skipulag og faglega nálgun. Svokölluð móttökudeild hefur verið starfrækt í Háteigsskóla frá 1994 og eru um 10% nemenda sem njóta sérstakrar þjónustu deildarinnar. Þá er leiklist samofin kennslu á öllum aldursstigum. Talið er að leiklist stuðli að sterkari sjálfsmynd, aukinni félagsfærni og dýpki skilning í þeim námsgreinum sem hún styður við. Síðastliðin tíu ár hefur sjálfsmat verið þróað í skólanum. Líðan nemenda er könnuð, viðhorf foreldra og starfsmanna. Kannanirnar eru það stuttar og einfaldar að auðvelt er að bregðast við og vinna úr þeim en einnig fljótlegt fyrir þátttakendur að svara. Niðurstöður eru kynntar á viðeigandi fundum en niðurstöður foreldrakönnunar eru birtar á heimasíðu skólans. Saman- burðartöflur um líðan nemenda eru einnig aðgengilegar á heimasíðu skólans. |
Skjalaskrá |
Höfundar | |
---|---|
Nafn | Háteigsskóli |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Opinber skjöl |
Útgáfuár | 2001, 2010, 2016 og 2018 |
Útgefandi | Borgarskjalasafn Reykjavíkur |
Leitarorð | menntamál, grunnskólar, nemendur, kennarar, Háaleiti, Kennaraháskóli Íslands. |