ÍTR - Smíðavellir

Nánari upplýsingar
Nafn ÍTR - Smíðavellir
Númer E8050
Lýsing

Æskulýðsráð Reykjavíkur var lagt niður 10. maí 1986 og hét eftir það Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur.

Möguleikar íbúa Reykjavíkur til skemmtilegrar frístundaiðju eru afa miklir og ættu allir aldurshópar að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. ÍTR leggur áherslu á miðla á einfaldan hátt upplýsingum um slíka starfsemi, hvort sem hún er á vegum ÍTR eða frjálsra félaga. Sérstök áhersla er lögð á að kynna möguleika barna og unglinga í hverfum borgarinnar.

Í hverfum borgarinnar veitir ÍTR margskonar þjónustu sem snýr að frítíma borgarbúa. Þar eru meðal annars frístundarmiðstöðvar, félagsmiðstöðvar, frístundaheimili, sundlaugar, íþróttamiðstöðvar, hjólabrettagarðar, gervigrasvellir og sparkvellir. Af starfsemi sem síður er hverfisbundin má nefna Hitt Húsið, Ylströndina, Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og skíðasvæðin. ÍTR sinnir víðtæku samstarfi við hagsmunaaðila í íþrótta- og æskulýðsstarfi, veitir styrki til félaga og styrkir þátttöku barna og unglinga í starfsemi þeirra með Frístundakortinu.

Skjalaskrá
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn ÍTR - Smíðavellir
Flokkun
Flokkur Opinber skjöl
Útgáfuár 2010, 2011.
Útgefandi Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Leitarorð íþrótta- og tómstundaráð, börn, smíðavellir, smíðar, æskulýðsráð,