Kelduskóli - Korpu og Vík

Nánari upplýsingar
Nafn Kelduskóli - Korpu og Vík
Númer K2220
Lýsing

Húsnæði Víkurskóla við Hamravík í Grafarvogi var vígt 5. desember 2003. Fyrsta skóflustungan var tekin 3. apríl 2000. Skólinn tók til starfa haustið 2001. Skólabyggingin er hugsuð sem smækkuð mynd af samfélaginu. Í skólanum eru 16 kennslustofur í þremur húsum, en hvert skólastig hefur sitt eigið hús, sem stendur við skólagötu og er tengibygging í miðjunni. Í Víkurskóla er unnið eftir hugmyndafræði skóla án aðgreiningar. Leiðir að því markmiði felast m.a. í einstaklingsmiðuðu námi, sveigjanlegum kennsluháttum, blönduðum námshópum og samkennslu árganga. Mikil áhersla er lögð á samstarf kennara með markvissum stuðningi við þá. Nemendur voru við vígslu skólans 220 í 1. til 10. bekk og starfsmenn 32. Skólastjóri er Árný Inga Pálsdóttir. Eftir sameiningu Vikurskóla, Kelduskóla og Korpuskóla 2012 heita skólarnir Kelduskóli – Vík og Kelduskóli – Korpa.

Kelduskóli hóf starfsemi 3. janúar 2012 þegar Korpuskóli og Víkurskóli voru sameinaðir.
Kelduskóli hefur tvær starfsstöðvar, Kelduskóla–Korpu sem stendur við stendur við Bakkastaði 2 og Kelduskóla-Vík semstendur við Hamravík 10 í Reykjavík. Áætlaður nemendafjöldi skólaárið 2016-2017 er 386 nemendur í 1.-10 bekk.

Skólinn er heildstæður einsetinn grunnskóli með tvær starfsstöðvar. Við skólann starfa 67 starfsmenn. Hjúkrunarfræðingur frá Heilsugæslu Grafarvogs kemur þrjá morgna í viku og sér um skólaheilsugæslu. Sálfræðiþjónustu og aðra sérfræðiþjónustu fær skólinn frá Þjónustumiðstöð Miðgarðs.
Í Kelduskóla-Korpu eru 4 stór almenn kennslurými með millirýmum og vinnuaðstöðu fyrir kennara. Einnig er aðstaða til list-og verkgreinakennslu í þar til gerðum stofum. Bókasafn er í miðju hússins og salur fyrir félagsstarf nemanda með aðliggjandi mötuneyti. Góð aðstaða fyrir frístundaheimilið er við inngang skólans. Stjórnunarálma og kaffistofa starfsfólks er í sama rými. Íþróttahús er í skólanum. Sunkennsla fer fram í Grafarvogslaug.

Í Kelduskóla-Vík eru 16 almennar kennslustofur og góð aðstaða til list- og verkgreinakennslu í þar til gerðum stofum. Í hjarta hússins er tölvuver og bókasafn. Þar er einnig mötuneyti, salur fyrir félagsstarf nemenda og aðstaða fyrir frístundaheimilið Vík. Tengt þessu svæði er stjórnunarálma og þar er vinnuaðstaða fyrir starfsmenn skólans. Íþróttahús er við skólann. Sundkennsla fer fram í Árbæjarlaug og Grafarvogslaug. Kennsla nemenda í 1.-4. bekk fer fram í innilaug.

Í Kelduskóla er unnið að því að þróa skólasamfélag þar sem fram fer einstaklings-hópamiðað nám með markvissum og skipulögðum hætti. Unnið er að því að samfella verði í námi og það myndi heild. Lögð er áhersla á sveigjanlega kennsluhætti og samvinnu nemenda. Einnig er áhersla lögð á samþættingu námsgreina og þemabundið nám. Lagt er upp með teymisvinnu kennara, kennarar vinna saman í teymum að undirbúningi náms og kennslu. Stefnumótunarvinna með aðkomu foreldra, nemenda og starfsmanna fór fram í ársbyrjun 2012 og var stefna skólans unnin út frá þeim forsendum sem og þeim grunni sem skólastarfið byggir á frá starfi Korpuskóla og Víkurskóla. Kelduskóli er Grænfánaskóli og hefur sett sér umhverfisstefnu þar sem lögð er áhersla á að auka þekkingu og virðingu nemenda fyrir umhverfi sínu og skapa jákvætt viðhorf nemenda og starfsmanna til umhverfismála.

Af heimasíði Kelduskóla,

Afhendingaraðili: Árný Inga Pálsdóttir, skólastjóri 11. maí 2014 og 9. maí 2017.

Innihald: Fundargerðir, einstaklingsmál, einkunnir, vitnisburðir, kennsla, nemendaverkefni, handbækur, starfsmannamál, ráðningarsamningar, skólanámsskrár, sjálfsmat, vinnuskýrslur, samstarf skóla o.fl.

Tímabil: 2001-2012.

Magn: 35 öskjur

Skjalaskrá
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Kelduskóli
Flokkun
Flokkur Opinber skjöl
Útgáfuár 2014 og 2017
Útgefandi Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Leitarorð menntamál, grunnskólar, nemendur, kennarar, Grafarvogur, Korpuhverfi, Víkurhverfi, Korpuskóli, Víkurskóli.