Listahátíð í Reykjavík I (1969 - 1999)

Nánari upplýsingar
Nafn Listahátíð í Reykjavík I (1969 - 1999)
Númer H2000
Lýsing

Listahátíð var fyrst haldin í Reykjavík árið 1970 og síðan annað hvert ár. Listahátíð er samstarfsverkefni Mennta- og Fjármálaráðuneytis og Reykjavíkurborgar, auk ýmissa menningarstofnanna og samtaka listamanna.

Helstu hvatamenn að stofnun hátíðarinnar voru m.a. Vladimir Ashkenazy og Ivar Eskeland þáverandi forstjóri Norræna hússins. Á Listahátíð hefur jafnan verið reynt að höfða til sem flestra og hafa komið fram jafnt innlendir sem erlendir listamenn. Árið 1978 var í fyrsta skipti haldin kvikmyndahátíð sem hluti af Listahátíð og var þannig fram til 1984 þegar Kvikmyndahátíð í Reykjavík var gerð að sérstakri hátíð og haldin á oddaári svo hún lenti ekki á sama ári og Listahátíð.

Fyrstu hátíðina 1970, bar mest á norrænum listamönnum en næstu áratugina tók Listahátíð á sig mun alþjóðlegri blæ og dagskráin varð að sama skapi umfangsmeiri. Meðal atriða sem verið hafa á Listahátíð eru t.d. myndlistarsýning með verkum Picasso 1986, Pólsk sálumessa eftir H. Penderecki 1988, sýning á verkum Marc Chagall í Listasafni Íslands sama ár, tónleikar Bob Dylan og sýning Helga Tómassonar og San Francisco balletsins 1990 og Wagner-dagar 1994 þar sem m.a. útdráttur úr Niflungahringnum var fluttur.

Frá árinu 2004 hefur Listahátíð Reykjavíkur verið árlegur viðburður, þverfagleg alþjóðleg listahátíð með áherslu á nýsköpun. Hún fer fram í hefðbundnum og óhefðbundnum rýmum um alla borg og teygir sig ár hvert út fyrir borgarmörkin.

Afhending: Framkvæmdastjórar Listahátíðar 1996,1999, 2000, 2002, 2006 og 2008.

Innihald: Stjórn og fulltrúaráð, fundargerðir, bréfa- og málasafn, samningar, dagskrár, kostnaður, fjármál, bókhald, bæklingar, Kvikmyndahátíð í Reykjavík, kynningarefni o.fl.

Tími: 1970-1998

Sjá einnig skjalaskrá Listahátíðar II - 1969-1999

Skjalaskrá
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Listahátíð í Reykjavík
Flokkun
Flokkur Opinber skjöl
Útgáfuár 1996, 1999, 2000, 2002, 2006 og 2008
Útgefandi Borgarskjalasafn Reykjavíkur
Leitarorð menningarmál, listir, hátíðir.