Nánari upplýsingar | |
---|---|
Nafn | Rimaskóli |
Númer | K2310 |
Lýsing | Rimaskóli, Rósarima 11, 112 Reykjavík, var stofnaður 1993. Veturinn 2002-2003 voru 820 nemendur í 1.-10. bekk í Rimaskóla og var hann þar með stærsti grunnskóli landsins. Árið 2008 voru 693 nemendur í skólanum. Rimaskóli er einsetinn og hefja allir nemendur skólastarf að morgni. Almenn kennsla og íþróttakennsla fer fram í húsnæði skólans, en sundkennsla í Sundlaug Grafarvogs. Frístundaheimilið Tígrisbær sem rekið er af ÍTR þjónustar 6 til 9 ára nemendur skólans. Félagsmiðstöðin Sigyn er starfrækt í skólanum. Rimaskóli hóf innleiðingu á nýrri aðalnámskrá haustið 2012 og hefur unnið ötullega að innleiðingunni síðan þá. Veturinn 2013 hófst samstarf um innleiðingu meðal skólanna í Grafarvogi og Kjalanesi (hverfi 4). Haustið 2014 var stofnaður starfshópur um innleiðinguna og er markmið þess hóps að vinna að sameiginlegri kennsluskrá skólanna. Afhending: Helgi Árnason, skólastjóri, 2004 og í desember 2016. Innihald: Bréf, fundargerðir, gestabækur, einstaklingsmál, kladdar, starfsmannamál o.fl. Tímabil: 1981-2012 Magn: 95 öskjur |
Skjalaskrá |
Höfundar | |
---|---|
Nafn | Rimaskóli |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Opinber skjöl |
Útgáfuár | 2017 |
Útgefandi | Borgarskjalasafn Reykjavíkur |
Leitarorð | menntamál, grunnskólar, nemendur, kennarar, Grafarvogur. |