Nánari upplýsingar | |
---|---|
Nafn | Seljaskóli |
Númer | K2340 |
Lýsing | Seljaskóli hóf starfsemi 1979 og fyrstu árin var þar aðeins kennt á yngsta bekkjarstiginu. Síðar breyttist það og þegar mest var voru nemendur um 1.300 talsins. Nú eru þeir um 680 og í skólanum er kennt alveg frá 1. bekk og upp í 10 bekk. Í dag eru tæplega 89 starfmenn við skólann; rúmlega helmingur eru kennarar. Kennsla við Seljaskóla fer að mestu leyti fram í aðalbyggingu skólans, en sérkennsla í nokkrum greinum fer fram í öðrum byggingum á skólalóðinni. Nemendum í 1. til 4. bekk býðst eftir að skóladegi lýkur upp á gæslu á vegum ÍTR - og 6 ára börnum býðst íþróttaskóli og tónlistarkennsla eftir skóla, foreldrum að kostnaðarlausu. Þá gefst nemendum 2. til 4. bekkjar kostur á að vera í skólanum eina klukkustund eftir að kennslu lýkur og eru þeir á þeim tíma aðstoðaðir við heimanám undir handleiðslu bekkarkennara. Borgarskjalasafn varðveitir úr Seljaskóla meðal annars reikninga frá 1981 til 1994, bekkjarmyndir frá 1979 til 1995, vorpróf frá ýmsum tímum, stundarskrár, vinnuskýrslur kennara, prófskýrslur og bekkjarkladda. Heimild: http://seljaskoli.ismennt.is/ Skrá yfir skjöl Seljaskóla frá árunum 1979-1995 voru afhent Borgarskjalasafni í september 1997 og í mars 2004 og síðan árið 2011. Tímabil: 1979-2006 |
Skjalaskrá |
Höfundar | |
---|---|
Nafn | Seljaskóli |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Opinber skjöl |
Útgáfuár | 1997, 2004 og 2011 |
Útgefandi | Borgarskjalasafn Reykjavíkur |
Leitarorð | menntamál, grunnskólar, nemendur, kennarar, Breiðholt, Seljahverfi. |