Nánari upplýsingar | |
---|---|
Nafn | Strætisvagnar Reykjavíkur - SVR |
Númer | B7000 |
Lýsing | Stofnfundur hlutafélagsins Strætisvagnar Reykjavíkur h.f. var haldinn 24. ágúst 1931. Stofnendur voru 13 Reykvíkingar og þegar á árinu 1932 var ekið á átta leiðum. Fyrsti formaður stjórnar SVR var Ólafur Þorgrímsson hæstaréttarlögmaður, en Pétur Þorgrímsson var ráðinn forstjóri. Fyrirtækið var rekið sem hlutafélag til ársins 1944, en þá keypti Reykjavíkurbær alla vagna félagsins, tuttugu talsins, ásamt öllum öðrum búnaði og tók við rekstrinum. Fram að þeim tíma hafði bæjarstjórn Reykjavíkur styrkt félagið til vagnakaupa. Árið 1990 voru fargjaldstekjur 295 milljónir, en framlag borgarsjóðs 299 milljónir króna. Biðstöðvar voru 420 víðs vegar í borginni, en biðskýli á um 255 biðstöðvum. Á fjórum stöðum voru yfirbyggðar skiptistöðvar; á Lækjartorgi, Hlemmi, Grensás og Mjódd. Að auki rak SVR húsnæði fyrir vagnstjóra á sex stöðum í borginni. Fargjald var greitt með staðgreiðslu í bauk hjá vagnstjóra, en einnig var hægt að kaupa strætómiða með verulegum afslætti á sölustöðum eða hjá vagnstjórum. Hægt var að fá skiptimiða ef skipta þurfti um vagn sem gilti í 30-45 mínútur. Alls voru 72 vagnar í eigu SVR sem gátu flutt 6200 farþega í senn og náðu yfir þjónustusvæði sem samsvaraði 34 ferkílómetrum í Reykjavík og á Seltjarnarnesi. Hjá fyrirtækinu starfaði 215 manns, og þar af 140 vagnstjórar og 45 við viðgerðir og þrif á vögnum. Skráð heimilisfang SVR var í Borgartúni 35 þar sem var að finna skrifstofur fyrirtækisins og öll aðstaða tæknideildar. Stjórnstöð fyrir vagnana var til húsa að Hverfisgötu 115 við Hlemm. Árið 1993 var Strætisvögnunum breytt í hlutafélag, sem mæltist illa fyrir hjá borgarbúum semvildu hafa strætisvagnana áfram sem borgarfyrirtæki, því var hlutafélaginu aftur breytt í fyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar 1994 eftir að nýr meirihluti hafði náð völdum í Reykjavík. Sami meirihlutinn breytti svo fyrirtækinu í byggðasamlag-bs og sameinaðist Almenningsvögnum hf. sem sá um almenningssamgöngur í Kópavogi, Garðabæ, og Hafnarfirði. En SVR hafði seð um samgöngur á Seltjarnarnesi og í Mosfellsbæ og á Kjalarnesi. Strætó bs. var stofnarð í júlí 2001. Strætó bs sér alfarið um þjónustu á höfuðborgarsvæðinu og veiti þjónustu við Akranes, Hveragerði og Selfoss. á venjulegum degi stíga um 35 þúsund manns inní vagna á þjónustusvæðinu. Farþegum fer fjölgandi. Á árinu 2011 gæti fjöldi farþega orðinn 8.5. milljónir. Á einum degi aka vagnarnir um 25 þúsund kílómetra, sem samsvarar að 17 vagnar aki hringveginn, hvern virkan dag. á einu ári aka vagnarnir um 7.5. milljón kílómetra. Fjöldi vagna í akstri að morgni á virkum degi, að vetri ril, fer yfir 100 vagna . Biðstöðvar á þjónustusvæðinu eru yfir 1.000 talsins. Á vikum degi þarf um 220 vagnstjóra til að aka vögnunum frá morgni til kvölds. Þjónusta strætisvagna kostar um 3.500.000.000 kr. á ari. Sveitarfélögin greiða stærstan hluta þess en farþegar greiða liðlega 20% með fargjöldum. Tekið saman á 10 ára afmæli Strætó bs. 2011 af Herði Gíslasyni. Skjöl afhent Borgarskjalasafni á árunum 1993-1994. Skjöl í öskjum 1 - 36 voru sótt í geymslur SVR Kirkjusandi 1993. Öskjur 37 - 68 voru afhentar af SNA eða Stjórnarnefnd um Almenningssamgöngur í janúar og febrúar 1994 eftir að SVR hafði verið lagt niður sem borgarfyrirtæki 1. desember 1993. Skjöl í öskjum 69 - 86 voru afhent af SVR hf. í mars og apríl 1994. Skjöl í öskjum 87 - 127 voru afhent af SVR borgarfyrirtæki í des. 1994. Afhending: Sveinn Björnsson, forstjóri SVR og Hörður Gíslason, skrifstofustjóra og forstjóri Strætisvagna Reykjavíkur h.f. o.fl., á árunum 1993 til 2014 alls 9 afhendingar. Innihald: Fundargerðir, bréfa- og málasafn, leiðakerfi, leiðabækur, skýli, fargjöld, samningar, starfsmannamál, fjármál, verkstæði, búnaður, vagnakaup, skýrslur eftirlitsmanna, fylgiskjöl o.fl. Tímabil: 1931-2014 Magn: 308 öskjur, þar af 15 stórar öskjur eða pakkar. |
Skjalaskrá |
Höfundar | |
---|---|
Nafn | Strætisvagnar Reykjavíkur - SVR |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Opinber skjöl |
Útgáfuár | 1993-2015. |
Útgefandi | Borgarskjalasafn Reykjavíkur |
Leitarorð | Fyrirtæki borgarinnar, almenningssamgöngur, bíllaus lífstíll. |