Átak í söfnun skjala kvenfélaga

Kvenfélagasambands Íslands og Félags héraðsskjalavarða á Íslandi standa nú fyrir sameiginlegu átaki í söfnun og varðveislu skjalasafna kvenfélaga á landinu sem og annarra félaga kvenna. Kvenfélög á Íslandi eiga sér langa og merka sögu. Í dag eiga yfir 200 félög aðild að Kvenfélagasambandi Íslands en einnig eru mörg félög kvenna sem standa utan þess. Allt frá því fyrsta kvenfélagið var stofnað árið 1869 hafa þau unnið feikimikið starf landi og þjóð til velfarnaðar og heilla. Áreiðandi er að starf og saga kvenfélaganna glatist ekki eða falli í geymslu. Saga þeirra er varðveitt í skjölum sem oft eru geymd við misjafnar aðstæður.

Borgarskjalasafn Reykjavíkur hvetur félögin og þá einstaklinga sem hafa skjöl kvenfélaga undir höndum til þess að afhenda þau skjöl sem ekki eru lengur í daglegri notkun til safnsins í því skyni að skjölin varðveitist á öruggum stað og verði aðgengileg áhugasömum um ókomin ár. Á skjalasöfnum hafa fleiri tækifæri til að skoða skjölin og fræðast um sögu félaganna.

Starfsmenn Borgarskjalasafns geta veitt kvenfélögum ráðgjöf og aðstoð við skráningu, frágang og afhendingu skjalanna. Skjalasöfn félaga samanstanda til dæmis af fundagerðarbókum, bréfasöfnum, ljósmyndum, félagatölum, basarbókum, kynningarefni og etv. fleiru. Gögn á rafrænu formi eins og félagatöl í Excel eða tölvupósta þarf að prenta út til afhendingar.

Vinsamlegast hafið samband við Borgarskjalasafn Reykjavíkur sími 411 6060, netfang borgarskjalasafn@reykjavik.is að fá nánari upplýsingar eða komið skjölunum til safnsins sem er til húsa að Tryggvagötu 15, 3. hæð.