Borgarskjalasafn tekur þátt í sýningunni Afrekskonur

Sýningin Afrekskonur verður opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur fimmtudaginn 3. september 2015, kl. 17.00. Þar verður gerð grein fyrir framlagi kvenna til íslensks samfélags, persónulegum og pólitískum sigrum, afrekum í hversdagslífi og á opinberum vettvangi. Sýningin verður með fjölbreyttu sniði, notast verður við myndir, texta, hljóð- og myndupptökur og annað það sem kemur afrekunum sem best til skila

Afrekskonur er samspil margra ólíkra sýninga sem hafa verið settar upp og/eða eru yfirstandandi í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Ein þeirra er sýning Borgarskjalasafns Reykjavíkur Ásýnd kvenna frá því í sumar í Grófarhúsi. 

Ásýnd kvenna: Sýningin byggist á skjölum og ljósmyndum kvenna varðveittum á Borgarskjalasafni Reykjavíkur frá árunum 1910-1920 þegar konur voru að fá kosningarétt og kjörgengi. Ásýnd kvenna er ekki ætlað að rekja sögu kvenna, heldur fremur gefa áhorfandanum tilfinningu fyrir konum og lífi þeirra á þessum tíma. Hönnuður sýningar er Guðrún Sigríður Haraldsdóttir.

Konur fylkja liði: Á þessari sýningu er gerð tilraun til að gera grein fyrir þeim fjölmörgu kvennahópum sem hafa haft áhrif á samfélagið með samstöðuna að vopni.

Kynleikar: Samsýning fjórtán listamanna. Listamennirnir fjalla í verkum sínum á ýmsan hátt um margbreytilegar hliðar femínismans og upplifun á sinni verund í femínísku samhengi. Mörk líkamans og sjálfið er kannað, sem og hugleiðingar um einstaklinginn í samfélagi sem mótar stöðugt kynin með einum eða öðrum hætti.

Konur í sögu bæjarins: Á sýningunni er gengið um þorpið Keflavík á fyrstu áratugum 20. aldar í fylgd Mörtu Valgerðar Jónsdóttur. Hún hafði þann hátt á að fara hús úr húsi og segja frá íbúunum eins og þeir komu henni fyrir sjónir í minningunni. Hún segir frá vinnu, áhugamálum, heilsu, útliti, persónuleika og atburðum í lífi þessa fólks. Afraksturinn er fjölbreyttur og sýnir þverskurð af samfélaginu.

Vér heilsum glaðar framtíðinni: Farandsýning Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafn sem sett er upp í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Árið 1915 var kosningaréttur rýmkaður verulega, en þá fengu allar konur og karlmenn 25 ára og eldri kosningarétt, þó með þeim takmörkunum að miða skyldi við 40 ára aldur kvennanna og þeirra karlamanna sem ekki höfðu kosningarétt áður.

Sýningin Afrekskonur verður opin á opnunartíma Ráðhúss til og með 30. september 2015 og er aðgangur ókeypis og allir velkomnir.