Eins og vindurinn blæs...

Félag héraðsskjalavarða á Íslandi verður með opið hús í Borgarskjalasafni Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, Reykjavík laugardaginn 13. nóvember 2010 kl. 13:00 til 17:00 í tilefni af Norrænum skjaladegi. Opna húsið á Borgarskjalasafni er undir kjörorðinu

Eins og vindurinn blæs…

Sextán héraðsskjalasöfn taka þátt í opna húsinu með einum eða öðrum hætti. Boðið verður upp á áhugaverða fyrirlestra, sýningu á skjölum, ljósmyndasýningu frá héraðsskjalasöfnum, kórtónleika, sögufélög kynna rit og mynddiska, barnakrókur þar sem börnin fá blöðru og litabók, kynnt verður starfsemi héraðsskjalasafnanna og fleira. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Fyrirlestar og uppákomur:

kl. 13.00  “Í jöklanna skjóli” - myndbrot um horfna lífshætti í Skaftafellssýslum.

kl. 13.30 Setning sameiginlegs skjaladags héraðsskjalasafna.

kl. 13.35 Söngfélag Skaftfellinga syngur nokkur lög. Kórstjóri Friðrik Vignir Stefánsson.

Kl 14:00 Gunnar Hersveinn: Þjóðgildi Íslendinga

Kl 14:30 Hrafn Sveinbjarnarson: “Að lífið sé skjálfandi lítið gras.” Börnin úr Hvammkoti og Kópavogslækurinn.

Kl 15:00 Svanhildur Bogadóttir: “Einangrunin rofin”. Skjalasöfn í fortíð, nútið og framtíð.

Kl 15:30 Sævar Logi Ólafsson: Loftvarnir í Reykjavík.

Kl 16:00 Guðrún Nína Petersen: Fljúgandi furðuhlutir og skemmtileg ský.

Kl 16:30 Ragnhildur Bragadóttir: Lán er að hann þig fái ... Um ástina í póstkortum og bónorðsbréf til ungrar Reykjavíkurfrauku um aldamótin 1900.

Ljósmyndasýning - 15 héraðsskjalasöfn hafa lagt til ljósmyndir úr söfnum sínum og úr daglegri starfsemi. Oft segja myndir meira en þúsund orð og á undanförnum árum hefur fjöldi ljósmynda verið afhendur til héraðsskjalasafnanna. Mikil vinna er framundan við skráningu mynda og eru gestir hvattir til að leggja okkur lið við skráningu.

Þau söfn sem leggja til myndir eru:

-Borgarskjalasafn Reykjavíkur -Héraðsskjalasafn Kópavogs -Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar -Héraðsskjalasafn Akraneskaupstaðar -Héraðsskjalasafn Borgarnes -Hérðasskjalasafn Ísafjarðar -Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu -Héraðsskjalasafn Skagfirðinga -Héraðsskjalasafn Svarfdæla -Héraðasskjalasafn Akureyrar -Héraðsskjalasafn Austfirðinga -Hérðasskjalasafn Neskaupstaðar -Héraðsskjalasafn Austur-Skaftfellinga -Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja -Héraðsskjalasafn Árnesinga

Skjalavarsla - góð ráð og leiðbeiningar - sérfræðingar héraðsskjalasafnanna gefa góð ráð og leiðbeiningar um skjalavörslu.

Í sýningarkössum verða skjöl frá Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar, Héraðsskjalasafni Árnesinga, Héraðsskjalasafni Kópavogs, Héraðsskjalasafni Mosfellsbæjar og Borgarskjalasafni Reykjavíkur. Einnig verða sýnd ástarbréf úr einkaeigu.

Sögufélagið, Sögufélag Borgfirðinga og Sögufélag Árnesinga kynna starfsemi sína. Skemmtilegar bækur á góðu verði.

Ættfræðiþjónustan ORG verður á staðnum - ef þú vilt vita meira um afa og ömmu…

Í barnahorni gefst börnum kostur á að lita myndir og fá hengdar upp á vegg meðan foreldrar skoða sýningar. Boðið verður upp á litabækur og blöðrum meðan birgðir endast. Tröllasögur fyrir þau börn sem þora.

Kaffihorn, þar sem boðið verður upp á kaffi og meðlæti og eitthvað fyrir börnin líka. Þá hefur verið setttur upp sérstakur skjaladagsvefur allra skjalasafnanna, þar sem sýnd eru skjöl- og ljósmyndir tengd þema dagsins sem er veður- og umhverfi.Slóðin á hann er www.skjaladagur.is

Allir velkomnir - ókeypis aðgangur

Sjá nánar á: www.heradsskjalasafn.is og www.skjaladagur.is

Þjóðskjalasafn Íslands verður þennan sama dag með opið hús kl. 11 til 15 í húsakynnum sínum að Laugavegi 162 og fleiri söfn utan Reykjavíkur verða með opið hús eða dagskrá að öðru tagi. Sjá má dagskrána í heild sinni á:

http://skjaladagur.is/dagskra.html