Flutningar á safnkosti Borgarskjalasafns Reykjavíkur

Nú standa yfir flutningar á safnkosti Borgarskjalasafns Reykjavíkur yfir til Þjóðskjalasafns Íslands. Athygli er því vakin á því að þann 1. mars n.k. verður hætt að taka á móti og svara fyrirspurnum hjá Borgarskjalasafni Reykjavíkur. Þeim fyrirspurnum sem ekki næst að svara fyrir þann tíma verða áframsendar til Þjóðskjalasafns Íslands.

Allar fyrirspurnir sem varða gögn úr safnkosti Borgarskjalasafns Reykjavíkur, eftir 1. mars, skulu berast til Þjóðskjalasafns Íslands í gegnum netfangið upplysingar@skjalasafn.is

Allar fyrirspurnir er varða skjalamál og ráðgjöf til borgarstofnanna skulu berast til skrifstofu upplýsinga og skjalstýringa skjalastyring@reykjavik.is. Líkt og verið hefur frá 1. janúar 2024.

Því miður má búast við þjónusturofi á meðan flutningum stendur. Áætlað er að flutningum frá Borgarskjalasafni Grófarhús ljúki í apríl 2026.