Manntalsbækur Reykjavíkur 1906-1969

Borgarskjalasafn Reykjavíkur hefur fengið styrk frá Þjóðskjalasafni Íslands til að hefja verkefni við að ljósmynda og birta á vef sínum manntalsbækur Reykjavíkur árin 1906-1969. 

Bækurnar eru ómetanleg heimild um íbúa- og húsasögu Reykjavíkur og mjög áhugaverðar fyrir sagnfræðinga og aðra fræðimenn sem og almenning.