Vel heppnaður skjaladagur

Það var húsfyllir á Norræna skjaladeginum 2010 í Grófarhúsi laugardaginn 13. nóvember þar sem 575 gestir heimsóttu Grófarhús og opið hús 15 héraðsskjalasafna.

Yfirskrift dagsins var Eins og vindurinn blæs… en samnorrænt þema dagsins í ár var Veður og loftslag. Svanhildur Bogadóttir, borgarskjalavörður, bauð gesti velkomna og kynnti dagskrána sem var fjölbreytt. Söngfélag Skaftfellinga söng við góðar undirtektir og kvikmynd um horfna búskaparhætti í Skaftafellssýslum var sýnd. Fyrirlestar voru á hálftíma fresti allan daginn í miðrými hússins og gerðu gestir góðan róm að fyrirlestrunum.

Fimm héraðsskjalasöfn sýndu skjöl. Sérstaka athygli vakti sýning Héraðsskjalasafns Kópavogs á því sem slæðist með skjölum sem afhent eru á héraðsskjalasöfnin og eins sýning á skjölum frá Héraðsskjalasafni Árnesinga sem höfðu lent í vatnstjóni og bruna. Borgarskjalasafn Reykjavíkur sýnir skjöl varðandi málmleit í Reykjavík á árunum 1909 til 1923 og um sjóböð í Reykjavík á árum áður. Þá var stór ljósmyndasýning frá 15 héraðsskjalasöfnum og kenndi þar margra grasa, ljósmyndir sem hafa verið afhentar söfnunum, ljósmyndir af skjölum og af starfsmönnum héraðsskjalasafnanna við vinnu sína.

Þá voru sérfræðingar héraðsskjalasafnanna til viðtals og ráðlögðu gestum um skjalavörslu, skráningu skjala, og ljósmynda auk  afhendinga á hérðasskjalasöfnin o.fl. Ljóst er á fjölda fyrirspurna að fagfólk á sviði skjalavörslu þarf ekki að óttast verkefnaskort á næstunni og einstaklingar greinilega áhugasamir um að varðveita og halda til haga og ganga vel frá einkaskjalasöfnum sínum.

Sögufélagið, Sögufélag Borgfirðinga og Sögufélag Árnesinga kynntu starfsemi sína og buðu gestum og gangandi að kaupa bækur á góðu verði. Oddur Helgason ættfræðingur hjá Ættfræðiþjónustunni ORG rak ættir gesta og svaraði fjölda fyrirspurna um ættir manna. Í barnakrók gafst börnum kostur á að lita myndir og gera dúkkulísur og voru stöðugt börn þar að lita. Þau fengu að gjöf litabækur frá Landssambandi hestamanna.

Gestir gerðu veitingum frá Kökugerð HP á Selfossi og Nóa Síríusi, sem styrktu héraðsskjalasöfnin með myndarskap, góð skil á meðan þeir sötruðu kaffi, skoðuðu skjöl, keyptu bækur og hlýddu á fróðlega fyrirlestra.

Hægt er að sjá fleiri ljósmyndir frá skjaladeginum á Facebook síðu Borgarskjalasafns.

Þá hvetjum við áhugasama að fara inn Facebook síðu safnanna skjalasöfnin kynna sig eða á skjaladagsvefinn skjaladagur.is en þar hægt að sjá framlag allra opinberra skjalasafna í tilefni dagsins og eldri framlög.