Vélhjólaklúbbur í Borgarskjalasafni

Borgarskjalasafn hefur fengið til varðveislu skjöl ónefnds vélhjólaklúbbs. Í þeim má fræðast um innra starf klúbbsins og þróun þess. Einnig er í safninu gestabók frá fundum og er þar að finna ýmis þekkt nöfn.

Skjölin verða til sýnis í afgreiðslu Borgarskjalasafns, Tryggvagötu 15, 3. hæð í dag kl. 11 til 16.

Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.