Yfirlýsing vegna greinar Álfheiðar Ingadóttur í Fréttablaðinu 24. janúar 2015

Í Fréttablaðinu í dag 24. janúar 2015 birtist grein eftir Álfheiði Ingadóttur þar sem hún vekur athygli á skjali á vef Borgarskjalasafns um safn Bjarna Benediktssonar, þar sem lesa megi að faðir hennar Ingi R. Helgason hrl. sé höfundur dagbókar, e.k. njósnaskýrslu um nafngreinda félaga sína í hreyfingu ungra sósíalista og stúdenta, dagbók sem rataði í einkaskjalasafn Bjarna Benediktssonar fyrrum forsætisráðherra. Álfheiður fer framá að Borgarskjalasafnið birti opinberlega leiðréttingu á þessum aðdróttunum.

Borgarskjalasafn Reykjavíkur viðurkennir hér með að mannleg mistök voru gerð við birtingu á umræddum skjölum. Engin tengsl var að finna milli umræddrar skýrslu og sendibréfs Inga R. Helgason um annað efni, sem lágu saman fyrir mistök. Ekkert bendir til þess að Ingi R. Helgason hafi tengst umræddri skýrslu.  Skjalið hefur nú verið tekið úr birtingu á vef safnsins.

Fyrir hönd Borgarskjalasafns Reykjavíkur vil ég biðja Álfheiði Ingadóttur og aðra sem málið varðar margfaldlega afsökunar og harma þessi mistök.

Reykjavík, 24. janúar 2015

Svanhildur Bogadóttir

borgarskjalavörður